Moskenesstraumen AS með lægsta boð í smíði og rekstur Vestmannaeyjaferju
Norska fyrirtækið Moskenesstraumen AS átti lægsta tilboð í smíði og rekstur nýrrar Vestmannaeyjaferju. Tilboð voru opnuð hjá Ríkiskaupum í dag. Lægsta boð eingöngu í smíði ferjunnar átti Nantong Rainbow Offshore and Egineering frá Kína en litlu munaði á því tilboði og boði frá Fiskerstrand Verft AS frá Noregi. Vegagerdin.is greinir frá.
�?tboðið var tvíþætt en bjóða mátti í annarsvegar nýsmíði ferjunnar og hinsvegar í einkaframkvæmd þar sem boðið var í smíði ferjunnar og rekstur í 12 ár.
Í smíði ferjunnar bárust alls 12 tilboð en kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 27,5 milljónir evra eða ríflega 3,5 milljarða íslenskra króna. Lægst boð kom frá Nantong Rainbow Offshore and Egineering frá Kína upp á 21.420.000 evrur, næstlægsta boð átti Fiskerstrand Verft AS frá Noregi upp á 21.850.000 evrur.
Lægsta boð í smíði og rekstur ferjunnar átti norska fyrirtækið Moskenesstraumen AS og hljóðaði það upp á 7,14 milljarða íslenskra króna en kostnaðaráætlun nam rúmum 13,22 milljörðum króna. Næstlægst bauð Eimskip Ísland ehf., og Sæferðir ehf. en það boð hljóðaði upp á rúmar 8,12 milljarða íslenskra króna.
Sjá nánar á vef Ríkiskaupa, aðra bjóðendur og tilboðsupphæðir.
Farið verður yfir tilboðin og borið saman eftir ákveðnum reglum hvort sé hagstæðara að smíða ferjuna eingöngu eða taka tilboði í einkaframkvæmd þ.e.a.s. smíði og rekstur ferjunnar. Farið verður yfir hvort tilboðin eru gild sem og mat á skipasmíðastöðinni. Einnig þarf að taka með í reikninginn fjarlægðarálag vegna nýsmíðinnar sem gert verður í samræmi við útboðsskilmála.

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.