Ringo, Bowie, Davíð Oddsson og fagrar eyjar

Í dag klukkan 17.30 opna Hulda Hákon og Jón Óskar sýningu í Einarsstofu sem þau kalla fjallið eina. Það er ekki í fyrsta skipti sem þau listahjón slá saman en verkin eru eins ólík og þau eru mörg. 

Og þær eru margar persónurnar og náttúrumyndirnar sem birtast í myndum þeirra. Þar koma m.a. við sögu Ringo Starr, David Bowie, Davíð Oddsson og eyjarnar Faxasker og Kolbeinsey lengst í norðri. Ekki stórar en skarta þó mannvirkjum.

Færa vinnustofu sína í Einarsstofu

Það má segja að þau færi vinnustofu sína í Einarsstofu því þar má sjá hvernig verkin verða til og er þetta einkum áberandi hjá Jóni. Hvað er fjallið eina? Þeirri spurningu svarar Hulda en Ringo og Bowie eru miklar hetjur í augum Jóns sem leitar líka í gamlar bíómyndir og plötur Bowie eru aldrei langt undan.

Jón sýnir hvernig verkin hans verða til og er eitt verkið bein tilvitnun í The Searcher, frægan vestra frá 1956. Annað vísar í plötu Bowies, Free Cloud. Líka í illskeittan Íra frá því fyrr á öldum sem skartaði sjö fingrum og hvorri hendi. Það kallar hann SVN FNGRS. Hulda er á öðrum slóðum og ögn jarðbundnari með sín persónulegu verk sem flestir þekkja.

Hundurinn þeirra, Heiða Berlín skipar stóran sess í listsköpun hjónanna

Þýski Schäfer hundurinn þeirra, Heiða Berlín skipar stóran sess í listsköpun hjónanna Huldu og Jóns Óskars. Hulda hefur látið hana fljóta inn í myndir sínar í gegnum tíðina, en Jón Óskar fer aðra leið. Saman eiga þau verk í sýningarskáp. Heiða Berlí III, fór með listamanninum út á Eyju og þau fundu ösku úr Eyjafjallajökli. Saman sköpuðu þau skúlptúra.  Heiða Berlín gróf og bjó til mótið. Jón Óskar steypti í gips. Í bakgrunn skúlptúra Heiðu Berlínar/Jóns Óskars eru verk unnin af honum einum, máluð á krossvið.

Þessi verk eru í sýningarskáp þar sem líka er Fjallið eina, lítið fjölfeldi sem Hulda hefur gert.  Annað fjölfeldi er þarna sem ber titilinn Sofandi draugar ásamt móti af færeyskum fótboltamanni sem fylgist með áhorfendum.

Happafley er viðfangsefni

Líka afsteypa úr gúmmíi  sem Hulda gerði fyrir DV og voru menningarverðlaun blaðsins. Þau voru fjöldaframleidd og þrýstingurinn á mótin við steypuna var 80 tonn. Einnig Bronseldur, umhverfisverðlaun Reykjavíkurborgar þar sem  950 gráða heitt bronsið rann inní mótinu sem eru þarna. 

Sigurður RE 4 og síðar VE 15 var lengi hugstæður Huldu. Í skápnum eru örsmáar akrílmyndir frá 1986, þar sem þetta happafley er viðfangsefnið ásamt Þorsteini húsverði í Hafnarhúsinu í Reykjavík.

Nú stendur yfir yfirlitssýning Huldu í Listasafni Íslands. Henni lýkur 29. september, Jón Óskar var með stóra sýningu á Listasafni Íslands árið 2015 og nú sýnir hann einnig í Eldheimum.

Sýningin opnar eins og áður segir í dag klukkan 17.30 í Einarsstofu í Safnahúsi.

 

Fleiri fréttir af Goslokahátíðinni og 100 ára afmæli Vestmannaeyjabæjar má lesa hér.

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.