Afmælishátíð á Skansinum

Á morgun, föstudag, hefst dagskrá á Skanssvæðinu með sýningu Leikhópsins Lottu á Litlu hafmeyjunni kl. 15:30. Sýningin tekur um eina klst. Í framhaldi af henni, eða kl. 16:30, hefst afmælishátíðin þar sem eftirfarandi flytja stutt ávörp: 

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsáðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- sveitastjórnarráðherra, Eliza Reid forsetafrú, Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, Arnar Sigurmundsson f.h. afmælisnefndar og Guðmundur Örn Jónsson, sóknarprestur.

Lúðrasveit Vestmannaeyja, Sverrir Bergmann og Halldór Gunnar sjá um tónlistarflutning. Krakkar úr Cirkus Flik Flak sýna listir sínar meðan á hátíðinni stendur. Áætlað er að dagskrá á Skansinum ljúki um kl. 17:30.

Bílastæði og rútuferðir

Fólk er hvatt til að leggja ökutækjum á hafnarsvæðinu norðan Strandvegar og ganga yfir á Skanssvæðið. Fyrir þá sem eiga erfitt með gang verður boðið upp á rútuferð á Skanssvæðið frá malarplaninu milli FES og Fiskiðjunnar kl. 16:15 og aftur til baka eftir hátíðina kl. 17:30.

Fyrri tónleikar í tilefni 100 ára afmælisins hefjast svo kl. 18 og þeir seinni kl. 21.

Minnt er á að Landlyst og Stafkirkjan eru opin alla daga kl. 10:00-17:00 og er aðgangur ókeypis.

Vestmannaeyingar og gestir eru hvattir til að mæta á Skanssvæðið, njóta hátíðarinnar, náttúruperlunnar og sólarblíðunnar sem búið er að lofa.

Nýjustu fréttir

Góð spá og lokaspretturinn hafinn fyrir Þjóðhátíð
Hafbotnsmælingum lokið – Komnir niður á 136 metra í Landeyjasandi
Flugmenn sviptir flugleyfi vegna lágflugs yfir Eyjum
Heildarafli dróst saman um 29 prósent í júní
Lögregla hættir rannsókn á andlátsmálinu á Hraunbúðum
Lóðaumsókn fyrir hvítu tjöldin hafin
Herjólfur kominn í viðgerðarstopp
Eyjakonur töpuðu gegn Þór/KA á Akureyri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.