Sami aðili staðinn af þjófnuðum, húsbrotum, nytjastuldi vélknúinna ökutækja og eignaspjalla
Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í liðinni viku vegna hinna ýmsu mála sem komu inn á borð lögreglu. Skemmtana hald helgarinnar fór ágætlega fram en eitthvað var þó um að lögreglan þurfti að hafa afskipti af fólki sökum ölvunarástands þess.
Lögreglan hafði í nógu að snúast vegna sama aðila sem ítrekað staðinn var af þjófnuðum, húsbrotum, nytjastuldi vélknúinna ökutækja og eignaspjalla, en alls eru þarna um 6 tilvik að ræða. Stolið var m.a. áfengi, þurrbúningi og létt bifhjólum. Er þarna um að ræða ungan dreng sem ítrekað hefur verið staðin að afbrotum á undanförnum mánuðum. Vill lögreglan af því tilefni hvetja fólk til að skilja verðmæti ekki eftir á glámbekk, læsa húsum sínum og bílum þegar þeir eru yfirgefnir.
�?ann 30. september sl. var lögreglu tilkynnt um skemmdir á hópferðarbifreið en bifreiðinni hafði verið ekið á göngubrú Herjólfs með þeim afleiðingum að skemmdir urðu á kælibúnaði á þaki bifreiðarinnar auk þess sem þakgluggi brotnaði. Engar skemmdir urðu á göngubrúnni né urðu slys á fólki.
Alls liggja fyrir 6 kærur vegna brota á umferðarlögum eftir vikuna en m.a. er um að ræða grun um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, ólöglegar lagningar bifreiða, akstur án réttinda og akstur gegn einstefnu.

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Kjartan Vídó frá Sjálfstæðisflokknum.
“Selfies” eru ekki hagsmunagæsla
ÍBV – Haukar: Einvígið heldur áfram
Ágæt veiði hjá Eyjunum
Rafmagn fór af allri eyjunni: „Greitt fyrir öryggi sem hélt ekki“
Börn í Eyjum mega þola löng ferðalög, lítinn svefn og óvissu
Dýpkun mistókst í morgun – reynt aftur í kvöld
Laxey og AKVA group semja um nýja seiðastöð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.