Eyjamenn á toppinn eftir sigur á Gróttu
ÍBV komst í efsta sæti Olís-deild­ar karla í hand­knatt­leik með átta marka sigri á Gróttu, 26:18, í Hertz-höll­inni á Seltjarn­ar­nesi í gærkvöld. Grótta var marki yfir í hálfleiki, 12:11, en leik­ur liðsins hrundi í síðari hálfleik. ÍBV hef­ur þar með níu stig eft­ir sex leiki, Aft­ur­eld­ing er stigi á eft­ir en á leik til góða við Stjörn­una á laug­ar­dag­inn. Grótta er í þriða sæti með sjö stig. Mbl.is greinir frá.
Leik­ur­inn var op­inn og skemmti­leg­ur fram­an af auk þess sem hraðinn var mik­ill. Leik­mönn­um sást ekki alltaf fyr­ir og mörg góð færi fóru í súg­inn. Gróttu­menn náðu þriggja marka for­skot, 7:4, eft­ir tæp­lega stund­ar­fjórðung eft­ir að Gróttu­menn sund­ur­léku vörn þeirra hvað eft­ir annað. Að sama skapi rötuðu skot Eyja­menn ekki í netið. ÍBV jafnaði met­in, 7:7, eft­ir tæp­ar 17 mín­út­ur. Aft­ur náð Grótta for­skot, nú tveim­ur mörku, 9:7. �?að sem eft­ir lifði fyrri hálfleiks voru Gróttu­menn með frum­kvæðið og voru mark yfir í hálfleik, 12:11.
Eyja­menn byrjuðu síðari hálfleik af mikl­um krafti og komust yfir. �?að ent­ist ekki lengi því sókn­ar­leik­ur­inn var mis­tæk­ur og skytt­un­um Agn­ari Smára Jóns­syni og Sig­ur­bergi Sveins­syni voru mislagðar hend­ur, sér­stak­lega þeim fyrr­nefnda. Gróttu­mönn­um hélst ekki á tveggja marka for­skoti vegna flumbru­gangs í sókn­ar­leikn­um. Eyja­menn gengu á lagið og skoruðu þrjú mörk í röð og komust marki yfir, 19:16, þegar 13 mín­út­ur voru til leiks­loka. �?á hafði Agn­ar Smári verið tek­inn af leik­velli og Theo­dór fært sig úr horn­inu yfir í skyttu­stöðuna. �?ar með gekk bolt­inn bet­ur og færi opnuðust til skota hjá Sig­ur­bergi og Theo­dóri auk þess sem það losnaði um Kára Kristján Kristjáns­son á lín­unni.
ÍBV náði fimm marka for­skoti, 21:16, þegar tíu mín­út­ur rúm­ar voru til leiks­loka. Flest gekk Gróttu­mönn­um í mót, jafnt í vörn sem sókn. Stemn­ing­in sem var í liðinu fram­an af dofnaði þegar á móti blés. Kol­beinn Arn­ar­son kom líka sterk­ur inn í markið eft­ir að hafa verið klopp­ótt­ur fram­an af.
Mun­ur­inn jókst smátt og smátt endaði með átta marka sigri ÍBV, 26:18.
Theo­dór Sig­ur­björns­son bar sókn­ar­leik ÍBV uppi lengst af og skoraði 11 mörk.

Nýjustu fréttir

Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.