Eins marks sigur á Akureyri
Eyja­menn unnu Ak­ur­eyri með eins marks mun í dag, lokta­töl­ur 25:24 í Eyj­um. Leik­ur­inn var sá fyrsti í 3. um­ferð Olís-deild­ar karla en heima­menn komust á topp­inn með sigr­in­um. Mbl. is greinir frá.
Ak­ur­eyri virðist hafa komið ÍBV á óvart í upp­hafi leiks þar sem þeir tóku öll völd frá fyrstu mín­útu. �?eir leiddu meðal ann­ars 4:7 og 6:8. Eft­ir það gáfu Eyja­menn í. ÍBV skoraði fimm mörk í röð og komust þar með 11:8 yfir. Á þeim kafla voru heima­menn meðal ann­ars ein­um manni færri. �?eir sýndu þá úr hverju þeir eru gerðir.
Eyja­menn leiddu með tveim­ur mörk­um í hálfleik 14:12 en Ak­ur­eyr­ing­ar voru ekki á því að gef­ast upp. �?eir misstu Eyja­menn aldrei langt frá sér í seinni hálfleik og því varð leik­ur­inn spenn­andi allt til loka.
Und­ir lok­in tókst gest­un­um að jafna met­in þegar tæp­ar þrjár mín­út­ur voru eft­ir. �?á virt­ust Eyja­menn vera að brotna niður og spiluðu þeir manni færri und­ir lok­in. Tom­as Ola­son kom aft­ur í mark gest­anna og hjálpaði til.
Agn­ar Smári Jóns­son kom ÍBV í 25:24 en Ak­ur­eyr­ing­ar tóku miðju og gátu jafnað met­in þegar 7 sek­únd­ur voru eft­ir. �?eir skoruðu mark eft­ir að hafa tekið miðjuna en Sver­re Jak­obs­son hafði því miður fyr­ir þá tekið leik­hlé. Al­gjör­lega grát­legt fyr­ir gest­ina sem hefðu svo sann­ar­lega átt að fá stig í dag.
Theo­dór Sig­ur­björns­son var marka­hæst­ur Eyja­manna með 7 mörk og hjá gest­un­um var Andri Snær Stef­áns­son með 9 mörk og Karol­is Strop­us með 8 mörk.
Markverðir liðanna áttu fín­an leik en Stephen Niel­sen varði 12 skot í marki ÍBV og Tom­as Ola­son 11 hjá gest­un­um.

Nýjustu fréttir

Tilboð upp á 480 milljónir í Ægisgötu 2
Barnamenningardagar settir í dag
Efri árin skipta máli
Alvarleg staða samgöngumála: Kallað eftir tafarlausum aðgerðum
Eldsneytisvandi í Eyjum
Segir þingmenn tala öðruvísi í Eyjum en í Reykjavík
Emil Gautason í lokahóp u-16
Vatnslögnin er stærsta hagsmunamál íbúa í Eyjum 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.