Oddný Harðardóttir - Berjumst fyrir betri samgöngum og heilbrigðisþjónustu
�?að eru kosningar á laugardaginn og það eru margir flokkar í boði. Með þessu greinakorni vil ég mæla með því að þú kæri Vestmannaeyingur kjósir Samfylkinguna. �?að eru margar ástæður fyrir því. Fyrst og fremst er ástæðan sú að Samfylkingin er jafnaðarmannaflokkur Íslands og berst fyrir jafnaðarstefnunni alla daga allan ársins hring. Við erum ekki jafnaðarmenn eingöngu dagana fyrir kosningar eins og dæmi er um hjá öðrum flokkum. Við viljum endurreisa heilbrigðiskerfið og gera það með því að styrkja opinbera hluta þess, spítalana og heilbrigðisstofnaninrar um allt land. Sjúkraflutningar eru þar með taldir.
Heilbrigðismálin brenna á íbúum í Vestmannaeyjum enda er augljóst vegna landfræðilegra ástæðna þarf að leggja meira til þjónustunnar en gert er.
Samgöngumálin brenna líka á íbúum í Vestmannaeyjum enda er augljóst vegna landfræðilegra ástæðna þarf að leggja meira til samgöngumála en gert er.
Og þessi tvö stóru hagsmunamál íbúa Vestmannaeyja eru samofin. �?að eru atvinnumálin líka. Nýr Herjólfur og betri Landeyjarhöfn er ekki bara nauðsynleg samgöngubót fyrir íbúa heldur er samgöngubótin nauðsynleg fyrir atvinnurekstur og ekki síst ferðaþjónustuna. Hver dagur sem ekki er mögulegt að sigla frá Landeyjahöfn bitnar á möguleikum Vestmannaeyinga til að selja þjónustu sína og skapa samfélaginu verðmæti. Svo ekki sé talað um mikilvægi þess að Vestmannaeyingar geti sótt þjónustu og heimsótt ættingja sína í landi.
Skólastarf sem mætir þörfum íbúa er einn af hornsteinum búsetuskilyrða í Vestmannaeyjum. �?ar er framhaldsskólinn í lykilhlutverki og háskólastarfsemin drifkraftur nýsköpunar. Nýsköpun í sjávarútvegi er frjó og spennandi þessi misserin þar sem leitað er leiða til að hámarka virði hvers fisks sem dregin er að landi. Verðmætar afurðir í formi fegrunarkrema og sáraumbúða úr fiskroði eru nýjungar sem hafa gengið vel. Rannsóknir á enn fleiri möguleikum eru hafnar og ríkið á að ýta undir enn frekara starf á þessu sviði.
Samfylkingin jafnaðarmannaflokkur Íslands er með stefnu sem er innblásin af hugsjónum jafnaðarstefnunnar. �?g hvet þig lesandi góður til að skoða stefnuna okkar á heimsíðu Samfylkingarinnar www.xs.is og hugsa til okkar í kjörklefanum á laugardaginn. Kjósum Samfylkinguna!
Oddný G. Harðardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi

Nýjustu fréttir

Elliði Snær skoraði átta mörk í jafntefli Íslands
Fylgi flokkanna í Eyjum
Komu inn vegna veðurs
Afslættir hverfa með bættu raforkuöryggi
Jason Stefánsson meðal útskriftarnema FÍV 
Foreign Monkeys gefa út þriðju breiðskífu sína – „III“
Úttekt á fasteignagjöldum ársins
Mikil gróska í fimleikastarfi og mót framundan
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.