Heilsublaðið - Vegan uppskrift:
28. febrúar, 2017
Mikil vitundarvakning hefur orðið á sviði mataræðis síðustu ár og þá sérstaklega hvernig matarvenjur fólks geta haft áhrif á umhverfið. Í ráðleggingum embættis landlæknis segir til að mynda að aukin neysla á jurtaafurðum og minni neysla dýraafurða hjálpi til við að takmarka losun gróðurhúsalofttegunda en vísindalegar rannsóknir sýna ótvírætt að stærsta ógnin við líf á jörðinni eru einmitt loftslagsbreytingar sem stafa af auknum gróðurhúsaáhrifum og súrnun sjávar. Hvort tveggja stafar af losun mannkyns á koldíoxíði (CO2) út í andrúmsloftið. Í sömu ráðleggingum frá embætti landlæknir kemur einnig fram að æskilegt sé að borða kjöt í hófi (500 gr. á viku) og takmarka sérstaklega neyslu á unnum kjötvörum. Læknirinn Michael Mosley gerði sömuleiðis neyslu á rauðu kjöti að umræðuefni sínu í nýrri heimildarmynd frá BBC þar sem hann kannar heilsufarslegar afleiðingar kjötáts. Í heilan mánuð borðaði hann mun meira af rauðu kjöti og unnum kjötvörum en hann vanalega gerði og kom í ljós, eftir einungis einn mánuð, að blóðþrýstingur og kólesteról hafði hækkað töluvert og í þokkabót hafði hann bætt á sig þremur kílóum af kviðfitu.
Dýravernd er síðan annað mál og verður hver og einn að gera upp við sjálfan sig hvort það sé réttlætanlegt að taka líf annarrar lífveru þegar hægt er að komast hjá því. Slæmur aðbúnaður er síðan fylgifiskur dýraræktunar sem á síðustu áratugum hefur breyst í verksmiðjubúskap sökum mikillar eftirspurnar fólks í dýraafurðir. �?ó ástandið sé kannski ekki eins slæmt á Íslandi og sumstaðar í heiminum þá hefur brúneggjamálið í fyrra, svínamálið árið 2014 og nú síðast fréttir af vanrækslu á yfir 200 nautgripum hjá bónda á Norðurlandi, sannað það að Ísland er engin undantekning frá reglunni.
Að því sögðu er ekki úr vegi að koma með eina ljúffenga uppskrift. Gjörið svo vel!
Linsubaunalasagne með kasjúhnetupestói �?? Uppskrift frá We Crave Vegan:
Lasagne innihald:
2 dl rauðar linsur
4 heilkorna lasagne plötur
1 dós hakkaðir tómatar
1 lítil dós tómatpúrra
4 hausar brokkólí (ca. 100 grömm)
2 msk sólþurrkaðir tómatar (í olíu)
4 hvítlauksgeirar
hálfur rauðlaukur
lúka fersk basilika
1 grænmetisteningur
næringarger
salt & kjúklingakrydd.
Aðferð:
1. Stillið ofninn á 170°C og blástur. Skolið linsurnar og sjóðið með 5 dl af vatni og grænmetistening. Setjið lokið á þegar suðan kemur upp og lækkið hitann aðeins. Sjóðið í u.þ.b. 20 mínútur, eða þangað til linsurnar eru orðnar mjúkar. Mikilvægt að fylgjast vel með og hræra inn á milli svo þær brenni ekki við botninn. �?egar þær eru tilbúnar finnst mér best að hella þeim í sigti og sía vatnið eins vel frá og hægt er.
2. Sjóðið á meðan vatn og raðið lasagne plötunum á fat og hellið vatninu yfir. Með þessu móti mýkjast þær og þurfa ekki að vera eins lengi í ofninum �?? það gerir það að verkum að minna af næringarefnum tapast úr grænmetinu við eldun.
3. Skerið brokkólí, sólþurrkaða tómata, hvítlauksgeira, rauðlauk og basiliku í grófa bita og setjið í matvinnsluvél. Maukið í hálfa mínútu, stoppið og skafið niður meðfram skálinni. Endurtakið þetta þangað til hráefnin eru orðin fínt skorin.
4. Hitið pönnu með 1 tsk af ólífuolíu, grænmetisblöndunni á og steikið á hæsta hita í ca. 2 mín. Lækkið svo hitann, bætið linsunum og báðum tómatdósunum við og blandið öllu vel saman. Bætið svo við salti og kjúklingakryddi eftir smekk.
5. Lokaskrefið er svo að setja helminginn af blöndunni í eldfast mót, skipta blöndunni í tvennt og raða lagskipt: linsubaunablanda, 2 lasagne plötur, linsubaunablanda (skilja smá eftir), tvær lasagne plötur og þekja svo efstu lasagne plöturnar með restinni af blöndunni. �?essu er svo skellt inn í ofn í 15-20 mínútur. Að lokum strái ég næringargeri yfir og toppa með kasjúhnetupestóinu.
Kasjúhnetupestó:
1 ½ dl sólþurrkaðir tómatar í olíu
1 dl kasjúhnetur
2 msk olía af tómötunum.
Aðferð:
Allt sett í matvinnsluvél. Maukið í hálfa mínútu, stoppið og skafið niður meðfram skálinni. Endurtakið þetta þangað til tómatarnir og hneturnar eru fínt skorin.
Til viðbótar langar mig að koma með einfalda uppskrift að hummus en hann er tilvalið álegg á brauð og annað álíka.
Próteinríkur hummus frá Sollu á Gló:
3 dl soðnar kjúklingabaunir (1 krukka lífrænar Himneskt baunir)
2 msk tahini
safinn úr ½ límónu eða sítrónu
1-2 hvítlauksrif, pressuð
½ – 1 tsk salt
¼ tsk cuminduft
cayenne pipar af hnífsoddi
1 msk steinselja eða kóríander, smátt saxað
1-2 msk góð olía (kaldpressuð ólífu- eða hörfræolía)
smá vatn eftir smekk (ef þarf).
�?að er einnig hægt að prófa sig áfram með alls kyns krydd og jafnvel bæta sólþurrkuðum tómötum í uppskriftina, það skemmir ekki fyrir.
Aðferð:
Allt sett í matvinnsluvél og maukað saman þar til silkimjúkt og kekklaust. Hellið olíunni smám-saman útí á meðan vélin er að vinna. Bætið við smá vatni ef hummusinn er of þykkur. Geymist í 5-7 daga í kæli í loftþéttu íláti. Einnig er hægt að nota töfrasprota í stað matvinnsluvélar.
Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
PXL 20251104 095848596
7. nóvember 2025
20:00
Bókakynning í Eldheimum - Óli Gränz
Skemmtun
ludra
8. nóvember 2025
16:00
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í Hvítasunnukirkjunni
Skemmtun
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.