Nemendur sér og skólanum sínum til mikils sóma
Hápunktur Opinna daga í Framhaldsskólanum er árshátíðin sem var haldin í Höllinni á miðvikudagskvöldið. �?ar mættu nemendur í sínu fínasta pússi og byrjuðu á ljúffengum mat sem Einar Björn og hans fólk hanteraði af list. Á eftir var fjölbreytt skemmtun sem Haraldur Ari stýrði af ljúfmennsku. Hátíðinni lauk svo með dansiballi á Háaloftinu þar sem dansinn var stiginn fram eftir nóttu.
Ef það var eitthvað eitt sem segja má um árshátíðina er hvað krakkarnir voru öll vel til höfð, prúð og voru skólanum og sjálfum sér til mikils sóma. Af skemmtiatriðum má nefna stuttmynd sem kvikmyndahópur Opinna daga gerði. �?eir sáu um leikstjórn, tökur og klippingu og voru sjálfir í aðalhlutverkum. Margt var mjög fyndið en það sem vakti mesta athygli þess sem þetta skrifar er hvað myndin var vel gerð.
Guðmundur Ásgeir Grétarsson og Birgir Reimar Rafnsson tóku lagið og sungu af meiri innlifun en sést hefur á sviði Hallarinnar og �?li Bjarki Hólmgeirsson fór með uppistand sem var allt innan marka.
Hápunkturinn var svo kosning á Herra og Ungfrú Framhaldsskólans þar sem Frans Sigurðsson og �?órhildur �?rlygsdóttir stóðu efst meðal jafningja. Aðrir fengu hinar ýmsu nafnbætur sem samnemendum þeirra fannst þau hafa unnið til. Allt þó til gamans gert og vakti lukku.
Eins og áður segir fór árshátíðin vel fram og gaman að fá tækifæri til að fylgjast með unga fólkinu að skemmta sér. �?að er á réttri leið.

Nýjustu fréttir

Sjaldheyrðar Eyjaperlur fengu að hljóma í Eldheimum
Þjóðhátíðarlögin ómuðu á landsmóti lúðrasveita
Erna Georgsdóttir formaður goslokanefndar 2027
Mikilvæg stig í húfi á Hásteinsvelli
Jóker-vinningur á miða úr Eyjum
ÍBV B áfram í 16-liða úrslit Powerade bikarsins eftir sigur á Herði
Kjötsúpa, söngur og góður félagsskapur
ÍBV fagnaði tveggja marka sigri gegn Selfossi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.