Fundur Fjölskyldu- og tómstundaráðs 15.03.2017
Fjölskyldu- og tómstundaráð – 191. fundur
haldinn í fundarsal Ráðhúss, 15. mars 2017 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu:
Trausti Hjaltason formaður, Páll Marvin Jónsson aðalmaður, Sigurhanna Friðþórsdóttir aðalmaður, Guðjón Ragnar Rögnvaldsson 1. varamaður, Guðrún Jónsdóttir starfsmaður sviðs og Margrét Rós Ingólfsdóttir starfsmaður sviðs.
Fundargerð ritaði: Margrét Rós Ingólfsdóttir,
Sólrún Gunnarsdóttir deildarstjóri málefna aldraðra sat fundinn í 3. máli.
Dagskrá:
1.
201701017 – Sískráning barnaverndarmála 2017
Sískráning barnaverndarmála í febrúar 2017
Í febrúar bárust 20 tilkynningar vegna 17 barna. Mál 15 barna voru til frekari meðferðar.
2.
200704150 – Fundargerð barnaverndar fyrir fjölskyldu- og tómstundaráð
Undir þessum lið er fjallað um öll erindi sem falla undir barnavernd og eru trúnaðarmál.
Fundargerð barnaverndar er færð í sérstaka trúnaðarmálabók.
3.
200811057 – Hraunbúðir
Deildarstjóri málefna eldri borgara kynnir stöðu framkvæmda á Hraunbúðum o.fl.
Deildarstjóri málefna aldraðra kynnti stöðu framkvæmda á Hraunbúðum.
Framkvæmdir við nýja aðstöðu fyrir dagdvöl í vesturenda matsalar eru á lokametrunum. Verið er að koma upp sérinngangi og nú styttist í að hægt sé að flytja dagdvölina.
Framkvæmdir við byggingu á sérhæfðri deild í austurhluta Hraunbúða eru á áætlun. Deildarstjóri leggur til að deildin verði stækkuð úr fimm herbergja deild í átta, tvö lítil herbergi sameinuð í eitt stærra, brautum fyrir stólalyftur verði komið fyrir í nýjum herbergjum og setustofa/matstofa verði stækkuð með sólstofu í austur.
Ráðið þakkar kynninguna. Ráðið er jákvætt gagnvart tillögum deildarstjóra og óskar eftir að tillögurnar verði kostnaðarreiknaðar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:20

Nýjustu fréttir

Tæp 63 prósent segja nei í Suðurkjördæmi
ÍBV stelpunum spáð sigri í Olís deildinni – Strákunum spáð sjöunda sæti
Spyr Morgunblaðið spurninga sem RÚV lætur eiga sig?
Myndband: Ný íbúðablokk tekur á sig mynd við Áshamar
Sjö sóttu um – sex umsóknir standa eftir
Evrópa er meira en Evrópusambandið
Suðurlandi allt
Tvö afmælismót Taflfélagsins um helgina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.