Aðalfundur VSV - Afkoman sú næstbesta frá upphafi
Hagnaður VSV-samstæðunnar nam tæplega 12,4 milljónum evra á árinu 2016 en var tæplega 10 milljónir evra árið áður. �?etta kom fram á aðalfundi Vinnslustöðvarinnar hf. í dag.
Rekstur og starfsemi Vinnslustöðvarinnar gekk vel 2016. Afkoman félagsins var sú æstbesta frá upphafi. Framlegð samstæðunnar (EBITDA) var 20,4 milljónir evra, nánast hin sama og 2015.
Eigið fé jókst um 9% og eiginfjárhlutfall er nú 38%.
Fjárfestingar voru miklar á árinu. Nýtt uppsjávarvinnsluhús var tekið í notkun, nýr togari er í smíðum í Kína og skip voru seld og keypt. Framkvæmdakostnaður var 18,4 milljónir evra, að frádregnu söluverði skipa. Leiðarljósið er að láta byggðina í Vestmannaeyjum njóta góðs af arðsömum rekstri og fjárfestingum VSV og styrkja þannig stoðir samfélagsins heima fyrir.
�?rátt fyrir miklar fjárfestingarnar minnkuðu heildarskuldir og skuldbindingar VSV um 3% vegna þess að handbært fé frá fyrri árum var notað til að takast á við nýfjárfestingarnar. Handbært fé dróst að sama skapi saman í reikningum félagsins eða um ríflega 60%.
VSV tók engin langtímalán á árinu en greiddi 12,4 milljón evrur af langtímaskuldum sínum. Aðalfundurinn samþykkti að greiða hluthöfum 8 milljónir evra í arð, sem svarar til 5% af áætluðu markaðsvirði hlutafjár. �?etta er fjórða árið í röð sem hluthafar VSV ákveða að greiða sér arð upp á 8 milljónir evra.
Guðmundur Kristjánsson í stjórn
Fjórir stjórnarmenn fimm voru endurkjörnir á aðalfundinum: Einar �?ór Sverrisson, Guðmundur �?rn Gunnarsson, Íris Róbertsdóttir og Rut Haraldsdóttir. Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims var kjörinn í stjórn í stað Ingvars Eyfjörð. Í varastjórn voru kjörnir Eyjólfur Guðjónsson og Hjálmar Kristjánsson en þriðji frambjóðandinn til varastjórnar, Guðmunda Bjarnadóttir, fór inn í varastjórn á kynjakvóta og var því endurkjörin líkt og Eyjólfur.
Mynd VSV: Atkvæðagreiðsla í stjórnarkjöri á aðalfundinum.
Af vef Vinnslustöðvarinnar – vsv.is.

Nýjustu fréttir

Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja
MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.