Á morgun kl. 13.00 mæta þeir Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur, Egill Helgason fjölmiðlamaður, Bubbi Mortens tónlistarmaður og �?mar Valdimarsson blaðamaður með meiru í Sagnheima og ætla að segja frá þeim löngu liðnu dögum þegar þeir ungir og óábyrgir menn dvöldu í Vestmannaeyjum.
�?að er Eyjahjartað sem stendur fyrir komu þeirra fjórmenninganna. Guðmundur Andri, Egill og Bubbi höfðu boðað komu sína síðasta haust en af því gat ekki orðið en nú eru þeir ákveðnir í að mæta og hefur �?mar Valdimarsson bæst í hópinn. Hingað til hafa brottfluttir Eyjamenn rifjað upp árin í Eyjum og hafa vinsældirnar farið sívaxandi. Í byrjun mars mættu hátt í 200 manns í Einarsstofu til að hlýða á Pál Magnússon á Símstöðinni, Gísla Pálsson á Bólstað og Brynju Pétursdóttir frá Kirkjubæ. �?að verður örugglega fróðlegt að fá hina hliðina, heyra hvað þjóðþekktum einstaklingum finnst um þann tíma sem þeir voru í Eyjum. Er ekki að efa að þeir Guðmundur Andri, Egill, Bubbi og �?mar eiga eftir að koma með nýjan og skemmtilegan vinkil á lífið í Vestmannaeyjum á síðustu öld.
�?au sem standa að Eyjahjartanu eru Kári Bjarnason, Atli Ásmundsson, �?uríður Bernódusdóttir og Einar Gylfi Jónsson sem lofar góðri skemmtun á sunnudaginn. Í viðtali síðasta haust sagði Einar Gylfi um spjall sem hann, Atli og �?uríður áttu við Guðmund Andra, og Bubba: �??Egill vann í Ísfélaginu eina vertíð og bjó hjá �?la í Suðurgarði sem segir allt sem segja þarf. Guðmundur Andri var í móttökunni í Ísfélaginu sumarið 1974 og bjó á verbúðinni þannig að þeir voru þar sem hjartað sló örast í Eyjum á þessum tíma.�?? Bubbi var miklu lengur viðloðandi Eyjarnar. Allt frá árinu 1974 til 1980 að fyrsta platan hans, Ísbjarnarblús kom út. �??Hann vann í Ísfélaginu, Fiskiðjunni og Vinnslustöðinni og bjó á verbúðunum, í Landlyst og Líkhúsinu. Hann kynntist mönnum eins og Einari klink og fleirum sem settu svip á mannlífið í Eyjum á þessum árum.�??
�??�?g og �?ura stefnum á að koma og hlökkum mikið til. �?að segir sitt um frásagnagleði þeirra félaga að málglatt fólk eins og við, Gylfi í Húsavík, Atli greifi og �?ura í Borgarhól komu varla að orði þegar við hittum þá. �?að var mikið hlegið og það verður ekkert öðruvísi í Sagnheimum á sunnudaginn,�?? sagði Einar Gylfi að endingu.
Guðmundur Andri kallar erindi sitt Núll í tombólukassa. Minningar sumarstráks. Egill kallar sitt erindi Á vörubílspallinum hjá Stebba Ungverja en Bubbi er ekki með orðalengingar og kallar sína frásögn einfaldlega Hreistur. �?mar kallar sitt erindi, Fólkið mitt í Eyjum. Einar Gylfi flytur svo lokaorð fyrir hönd undirbúningsnefndar. Dagskráin hefst stundvíslega kl. 13.00 í Sagnheimum á annarri hæð í Safnahúsinu. Kári vildi koma að þökkum til forvígismanna Eyjahjartans fyrir þeirra vinnu við að koma saman hverri dagskránni eftir aðra og hvetur sem flesta til að koma, hlusta á skemmtilega upprifjun einstaklinga sem dvöldu hér á mótunarárum og einfaldlega gleðjast með glöðum.