Í samtali við Eyjafréttir kvaðst Ian Jeffs, þjálfari kvennaliðs ÍBV, spenntur fyrir komandi átökum en liðið spilar sinn fyrsta leik í Pepsi-deildinni á föstudaginn á heimavelli gegn KR.
Ef við ræðum aðeins undirbúningstímabilið, hvernig finnst þér það hafa gengið hjá ykkur? �??Heilt yfir bara mjög vel, eins og alltaf byrjaði það hægt og rólega á meðan við erum að fá leikmenn inn erlendis frá. �?etta er svolítið öðruvísi hér í Eyjum en hjá öðrum liðum. �?að tekur alltaf smá tíma að finna út hvernig nýir leikmenn passa inn í okkar lið. Í fyrsta leiknum á móti Val töpuðum við 6:3 en eftir það hefur verið stígandi í okkar leik og við verið að taka miklum framförum. Við náðum síðan okkar markmiði, sem var að komast í undanúrslit
lengjubikarsins en þar töpuðum við á móti Breiðabliki. En eins og ég segi þá líst mér bara vel á þetta,�?? segir Jeffs.
�?að verða oft miklar breytingar á leikmannahópnum milli ára og eru til að mynda 12 leikmenn farnir og sjö komnir fyrir þetta tímabil. �??�?að er bara þannig með útlendingana, sumir vilja vera hér í eitt ár og síðan prófa eitthvað nýtt en aðrir fíla þetta og vilja vera áfram eins og t.d. Cloe Lacasse en hún er að hefja sitt þriðja tímabil með okkur og líður greinilega bara vel hér. Natasha Anasi er síðan bara ólétt þannig að það var ekki eins og hún vildi ekki vera áfram, henni leið vel hérna en svona er þetta bara. Við höfum síðan bara fyllt skörðin fyrir hina leikmennina sem fóru aftur heim eða í önnur lið með nýjum leikmönnum og þeir líta vel út,�?? segir Jeffs og bætir við að hann eigi ekki eftir að koma til með að styrkja hópinn frekar. �??Nei, við erum komin með okkar hóp, blöndu af erlendum og innlendum leikmönnum en við fengum t.d. Rut Kristjánsdóttur og Ingibjörgu Lúcíu. Við reynum alltaf að fá íslenska leikmenn og það er mjög gott að hafa fengið þessa tvo, ég er ánægður með það.�??
Ykkur var spáð 5. sætinu af fótbolta.net er það ekki bara eðlilegt? �??Jú, það er svo sem eðlileg spá, þeir skoða náttúrulega bara undirbúningstímabilið og meta eftir því. Mér líður samt betur núna en í fyrra þrátt fyrir að hafa ekki komist eins langt í lengjubikarnum. �?etta er gott á vissan hátt, það er ekki eins mikil pressa á okkur en innan hópsins verðum við að gera meiri kröfur, okkar markmið er töluvert meira en þetta, við viljum ekki vera miðjudeildarlið, við viljum vera ofar og reyna að berjast við þessi topplið. Við erum oft að spila vel gegn liðunum fyrir neðan okkur en við verðum að gera betur gegn þessum sterkustu liðum sem enduðu fyrir ofan okkur í fyrra. Við minnkuðum bilið á milli okkar og stóru liðanna á síðasta tímabili og verðum við núna að taka næsta skref í því ferli,�?? segir Jeffs sem heldur að deildin verði áhugaverð í ár. �??�?g held að deildin verði skemmtileg, það er ekki lengur bara þessi tvö til þrjú lið sem eiga möguleika á því að vinna eins og var fyrir fimm til sex árum, öll lið geta tekið stig hvert af öðru.�??
Tímabilið hefst 28. apríl á Hásteinsvelli þegar ÍBV mætir KR og vonast Jeffs eftir betri byrjun en síðast. �??Við byrjum vonandi betur en í fyrra. Við urðum þá lengjubikarmeistarar en byrjuðum samt mótið illa, töpuðum fjórum af fyrstu sex leikjunum og þar með búin að spila okkur úr toppbaráttunni. Við þurfum klárlega góða byrjun ef við ætlum að blanda okkur í toppbaráttuna,�?? segir Jeffs að lokum.