Trausti gefur áfram kost á sér
�?skuský lagðist yfir Vestmannaeyjar þennan dag. Fyrsti heimaleikur Íslandsmótsins átti að vera daginn eftir á Hásteinsvelli, ljóst var að enginn leikur yrði spilaður í Eyjum næstu daga. Til að gera langa sögu stutta þá gekk nánast allt upp þetta tímabil eftir þetta. Eyjamenn þjöppuðu sér allir saman og studdu liðið sitt enn betur en áður. Liðinu sem hafði verið spáð falli var næstum því búið að vinna íslandsmeistaratiltilinn sem rann úr greipum í síðasta leik. Eyjamenn höfðu fjölmennt sjóleiðina suður til Keflavíkur þar sem sannkallað rússíbanatímabil endaði með dramatísku tapi.
Töfrar samfélagsins
Eftir leikinn sat ég einn í varamannaskýlinu með tárin í augunum, gegnblatur og veðurbarinn á þessum kalda haustdegi. �?ti á vellinum sá ég að erlenda leikmanninn sem hafði komið í upphafi tímabils var orðinn einn af ,,okkur,, hann hágrét yfir úrslitunum, fyrstu dagana vissi hann ekki einu sinni hvar Heimaklettur var. Tilfinningin var góð, að sjá alla þessa stráka gefa sig 100% í verkefnið fyrir samfélagið af svona mikilli innlifun og sjá Eyjamenn í stúkunni klappa fyrir liðinu sínu og frábærum árangri þess á tímabilinu. �?að eru einhverjir töfrar í þessu samfélagi sem ég varð oft vitni að við starf mitt sem framkvæmdastjóri kanttspyrnudeildar tímabilin 2010 og 2011. Nýir leikmenn og aðkomulið voru oft agndofa yfir fegurðinni í Eyjum og kraftinum í samfélaginu.
Spenna, sigrar og töp
�?arna varð mér ljóst að ég vildi starfa fyrir þetta samfélag og reyna að gera því gagn og berjast fyrir enn betri framtíð þess. �?g ætla því að gefa kost á mér í 2-3. sætið í röðun við val frambjóðenda á lista Sjálfstæðisflokksins. �?að eru forréttindi að hafa fengið tækifæri til að taka þátt í baráttunni á þessu kjörtímabili bæði í sigrum og töpum. Sigrarnir eru oft hvetjandi en töpin eru til þess að læra af og ögra mann til að gera betur. �?að eru virkilega spennandi tímar framundan í Eyjum og væri það mér heiður að vera áfram þátttakandi sem fulltrúi Sjálfstæðisflokksins á lista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar.
Trausti Hjaltason.

Nýjustu fréttir

„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Hugrekki er oft bara að halda áfram
Skólanum slitið á Stakkó
Hrafnhildur Hallgrímsdóttir með 9,0 í meðaleinkunn
Íris ráðin bæjarstjóri til næstu fjögurra ára

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.