Að vera eða vera ekki........
…….í framboði.
Er klárlega sú spurning sem ég hef oftast fengið undanfarna mánuði. Oftast hef ég nú svarað því þannig:
Já, ég ætli að skoða það að taka þátt áfram, en fyrir nokkru síðan fór ég að velta því fyrir mér og rifja upp, á hvaða forsendum ég tók þátt í þessu fyrir 4 árum síðan og í raun og veru kom það mér svolítið á óvart að uppgötva það, að þær forsendur væru í raun og veru allar brostnar.
Eftir að hafa velt þessu fyrir mér síðustu vikurnar og rætt þetta við nokkra af félögum mínum á Eyjalistanum að undanförnu, þá tók ég þá ákvörðun um síðustu helgi að gefa ekki kost á mér í sæti á lista Eyjalistans fyrir komandi kosningar og hef ég nú þegar tilkynnt stjórn Eyjalistans það og á hádegi í dag, að loknum fundi hjá umhverfis og skipulagsráði, þá tilkynnti ég meirihlutanum að þetta væri minn síðasti nefndarfundur á þessu kjörtímabili.
�?g vil að lokum þakka félögum mínum á Eyjalistanum fyrir samstarfið sl 4 ár og óska þeim alls hins besta í komandi kosningum. Einnig vil ég þakka öllum þeim fjölmörgu Eyjamönnum sem stutt hafa mig og hvatt áfram. �?g er sjálfur bara nokkuð sáttur við störf mín á kjörtímabilinu, en eins og gefur að skilja mun ég þar af leiðandi ekki taka þátt í kosningunum í vor og sjálfsagt gera upp kjörtímabilið betur síðar og að sjálfsögðu mun ég halda áfram að skrifa þegar og ef ég nenni.

Nýjustu fréttir

Fylgi flokkanna í Eyjum
Komu inn vegna veðurs
Afslættir hverfa með bættu raforkuöryggi
Jason Stefánsson meðal útskriftarnema FÍV 
Foreign Monkeys gefa út þriðju breiðskífu sína – „III“
Úttekt á fasteignagjöldum ársins
Mikil gróska í fimleikastarfi og mót framundan
Hlutafjáraukning Eyjaganga langt komin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.