Enn allt á huldu fyrir komandi sveitastjórnakosningar
DCIM100MEDIAYUN00052.jpg
\DCIM\100MEDIA\YUN00052.jpg
Nú styttist í sveitastjórnarkosningar, en þær verða haldnar 26. maí. Lítið hefur verið að frétta af framboðslitum hér í bæ undanfarið.
�?sætti hafa verið í Sjálfstæðisflokk Vestmannaeyja eins og Eyjafréttir hafa greint frá. Í desember felldu fulltrúar fulltrúaráðs þá tillögu að farið yrði í röðun og gekk fólk út af þeim fundi í þeirri trú að framundan væri prófkjör. Annað koma á daginn þegar stjórn fulltrúaráðs boðaði til annars fundar, því ekki hafi prófkjörið verið samþykkt með lögmætum hætti. �?ann 10. janúar sl. var svo kosið gegn því að halda prófkjör og ákveðið að farið skyldi í Röðun. Aðeins sjö frambjóðendur buðu sig fram til Röðunar hjá flokknum, en frambjóðendur þurftu að vera tíu að lágmarki. �?að verður því farið í uppstillingu.
Uppstillingarnefnd er að funda þessa daganna um komandi lista. �??Uppstillinganefndin fundar reglulega og miðar störfum ágætlega. Fleiri fundir verða í þessari viku. Eðli málsins samkvæmt eru engar áfangaskýrslur gefnar út og því ekkert að frétta,�?? sagði �?lafur Elíasson, formaður uppstilinganefndar Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í samtali við Eyjafréttir.
Annað framboð?
Heyrst hefur af undirbúningi annars framboðs, skipað Sjálfstæðismönnum sem annars hefðu boðið sig fram í prófkjöri hjá flokknum. Íris Róbertsdóttir og Elís Jónsson hafa oftast verið nefnd þar. Elís sagði í samtali við Eyjafréttir í febrúar að hann hefði sagt síðan að prófkjörið var fellt að það yrði annað framboð, hann væri tilbúin að leiða það eða einhverjir aðrir. Eins og staðan er í dag verða því væntanlega tvö framboð úr röðum sjálfstæðismanna.
Ekkert heyrist frá E-listanum
Eyjafréttir höfðu samband við Sólveigu Adolfsdóttur forsvarsmann E-listans í febrúar. Hún sagðist ekki geta gefið neitt upp neitt þá og ekki vilja þau gefa upp neitt ennþá. Sólveig sagði í febrúar að þau væru að funda, �??við erum að vinna í þessu og ætlum að vanda okkur vel. Við funduðum í síðustu viku og ætlum að hittast í þessari.�?? sagði Sólveig. �??Eitt get ég sagt þér að í fyrsta skipti í mörg ár er ég virkilega sátt með það sem koma skal, það verða ný andlit og góð blanda af fólki,�?? sagði Sólveig að lokum.

Nýjustu fréttir

„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Hugrekki er oft bara að halda áfram
Skólanum slitið á Stakkó
Hrafnhildur Hallgrímsdóttir með 9,0 í meðaleinkunn
Íris ráðin bæjarstjóri til næstu fjögurra ára

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.