Sigrar í báðum leikjum kvöldsins - myndir
Bæði karla- og kvennalið ÍBV í handbolta voru í eldlínunni í Olís-deildunum í kvöld en skemmst er frá því að segja að bæði lið fóru með sigur af hólmi.
Í fyrri leik kvöldsins fóru Eyjakonur afar illa með Stjörnuna en lokatölur voru 37:23. �?að var ljóst snemma leiks að Stjarnan yrði ekki mikil fyrirstaða og var staðan í hálfleik 19:11. Liðsmenn ÍBV gáfu ekkert eftir í síðari hálfleik og gjörsamlega rúlluðu yfir slakt lið Stjörnunnar.
Karólína Bæhrenz var markahæst í liði ÍBV með átta mörk. Á eftir henni kom Ester �?skarsdóttir með sjö mörk. Erla Rós Sigmarsdóttir varði tíu skot í markinu.
Í seinni leik kvöldsins mætti karlaliðið ÍR í leiks sem var aðeins meira spennandi. Eyjamenn reyndust þó alltaf líklegri og svo fór að heimamenn sigruðu með fjórum mörkum, lokatölur 30:26.
�?rjá lykilmenn vantaði í lið ÍBV í kvöld en þeir Róbert Aron Hostert og Sigurbergur Sveinsson voru í agabanni á meðan Theodór Sigurbjörnsson er að jafna sig eftir líkamsáras eins og fram hefur komið á vef Eyjafrétta.
�?að var allt í járnum í fyrri hálfleik en það var ÍBV sem leiddi með einu marki í hálfleik, staðan 14:13. Í síðari hálfleik fór meira að skilja á milli liðanna og var munurinn mest fimm mörk. Svo fór að leikurinn endaði 30:26 eins og fyrr segir. Eyjamenn geta verið nokkuð sáttir með sína spilamennsku í leiknum, ekki síst í ljósi atburða helgarinnar.
Kári Kristján Kristjánsson og Agnar Smári Jónsson voru markahæstir í liði ÍBV með átta mörk hvor. Aron Rafn Eðvarðsson var með 12 skot varin í markinu.

Nýjustu fréttir

„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Hugrekki er oft bara að halda áfram
Skólanum slitið á Stakkó
Hrafnhildur Hallgrímsdóttir með 9,0 í meðaleinkunn
Íris ráðin bæjarstjóri til næstu fjögurra ára

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.