VM skammað í úrskurði úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna
Mynd/Óskar Pétur Friðriksson

VM – Félag vélstjóra og málmtæknimanna, er skammað í úrskurði úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna í máli þriggja útgerða gegn Ísfélagi Vestmannaeyja. Telur úrskurðarnefndin að með beinum afskiptum af samningagerð áhafnar og útgerðar hafi VM raskað því fyrirkomulagi sem eigi að vinna eftir í málum sem þessum.

Í ágúst síðastliðnum fór fram atkvæðagreiðsla meðal skipverja Heimaeyjar VE-1, Álseyjar VE-2 og Sigurðar VE-15 um að segja upp samningi um skiptaverð við Ísfélag Vestmannaeyja. Samningar milli aðila sigldu svo í strand í september og í kjölfarið var deilan send úrskurðarnefndinni.

„Hugmyndir sjómannanna, eða öllu heldur sjómannaforystunnar, voru langt frá því að vera aðgengilegar fyrir útgerðina,“ segir Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélagsins. „Verðið var hærra en algengast er á mörkuðum. Það var alveg ljóst þegar við settumst niður með sjómönnum að þá fengu þeir aðstoð sjómannaforystunnar. Tilboðið kom frá sjómannaforystunni til okkar og það var ekki grundvöllur fyrir að hægt væri að semja. Ég hefði viljað semja og allir aðilar vilja frekar semja en fá úrskurð. Nú er verkefnið að setjast niður og finna leið til að ná sameiginlegri niðurstöðu í málinu.“

„Þegar litið er til þess hlutverks sem heildarsamtök sjómanna og útvegsmanna hafa í kjarasamningum og lögum og lýst er hér að ofan verða allir sem koma að máli að virða það heildarfyrirkomulag sem þar er gert ráð fyrir,“ segir í úrskurði nefndarinnar.

Því hafi VM, stéttarfélag skipverjanna, ekki mátt samkvæmt lögunum hlutast til um samningagerð skjólstæðinga sinna við útgerðina.

Nýjustu fréttir

„Úttroðinn af loðnu”
Fréttapýramídar afhentir fyrir nýliðið ár
Karlar hvattir til að sýna handverk
Guðbrandur Einarsson segir af sér þingmennsku
Mikill áhugi á Eyjagöngum
Saltfisksala hjá meistaraflokkum ÍBV
ÍBV með mikilvægan sigur á ÍR
Kveikjum neistann: Jákvæðar vísbendingar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.