Endurbætt eldhús tekið í notkun á Hraunbúðum

Nú um helgina var eldhúsið á Hraunbúðum tekið í notkun aftur eftir miklar endubætur, þesssu er greint frá á heimasíðu Hraunbúða. Framkvæmdirnar hófust í nóvember 2018 og þá var fyrri hlutinn tekinn í gegn þar sem skipt var um lagnir og niðuföll löguð ásamt því að allt var stífmálað og gólfið flotað og flísalagt. Ekki þótti ráðlegt að halda áfram með verkið að svo stöddu, svo það færi ekki inn í aðventuna, en þá er það mikið að gerast á heimilinu og því þótti það ekki ráðlegt.  Eftir áramótin nánar tiltekið 7.janúar var haldið áfram og allt hreinsað út úr eldhúsinu.

Meira verkefni en áætlað var
Eins og oft vill verða við svona framkvæmdir, þegar búið var að rífa allt gólfefni af þá kom í ljós að vatnslagnir voru orðnar lélagar og því þurfti að brjóta upp hluta af gólfi, skipta um lagnir og laga niðurföll. En nú er þessum framkvæmdum loksins lokið og var gólfið flotað og flísalagt, nýjar vatns og rafmagnslagnir, sett stál á veggi, tæki endurnýjuð að hluta, ný lýsing var sett upp og svo mætti lengi telja og er eldhúsið hið glæsilegasta í dag, og var m.a slegið upp Þorrablóti í tilefni dagsins !

Margir komu að verkefninu
Að þessum framkvæmdum komu m.a Miðstöðin, Geisli, Vélaverkstæðið Þór, Hannes Harði, Ársæll Sveinsson & co,  Davíð málari og hanns menn, Gunnar okkar maður Húsvörður með meiru, okkar menn í Þjónustumiðstöð Vestmannaeyjabæjar, Framkvæmdasvið bæjarinns o.fl. og viljum við þakkað öllum þessum aðilum fyrir frábæra þjónustu og vinnubrögð.
Á meðan að framkvæmdum stóð, frá því í janúar þurftum við að kaupa heita matinn í hádeginu frá Einsa Kalda og viljum við koma á framfæri miklu þakklæti til Einars og hanns starfsfólks fyrir frábæra þjónustu við okkur á meðan staðið var í þessu.

Nýjustu fréttir

Jason Stefánsson meðal útskriftarnema FÍV 
Foreign Monkeys gefa út þriðju breiðskífu sína – „III“
Úttekt á fasteignagjöldum ársins
Mikil gróska í fimleikastarfi og mót framundan
Hlutafjáraukning Eyjaganga langt komin
Áframhaldandi hvassviðri út vikuna  
Áætlun um rýmingu Heimaeyjar eftir að Surtsey fór að gjósa
Loðnu að finna á stóru svæði
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.