Kolmunna af miðum við Írland er tekið fagnandi í fiskimjölsverksmiðju VSV. Byrjað var að bræða tæplega 2.000 tonna farm úr Huginn VE að morgni sunnudags 3. mars. Ætla má að sá afli endist verksmiðjunni fram á aðfaranótt miðvikudagsins.
„Við höfum lengi beðið eftir því að fá hjólin í gang hjá okkur á nýjan leik. Hér hefur ekkert verið brætt frá 30. nóvember,“ segir Unnar Hólm Ólafsson verksmiðjustjóri.
„Ísleifur VE er á miðunum við Írland núna. Það síðasta sem ég heyrði var hann væri kominn með um 1.100 tonn og að styttist í heimferð. Siglingin til Eyja tekur allt að þrjá sólarhringa og gera má því ráð fyrir skipinu hingað til hafnar undir helgi.
Þetta er vissulega gott svo langt sem það nær en fyllir auðvitað hvergi upp í stóra skarðið sem loðnan skilur eftir sig. Við neitum samt að gefa upp vonina og höldum okkur við enn að loðna muni koma í leitirnar og gefinn verði út veiðikvóti.“




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.