Tóku tilboðinu
tjaldsvaedi
Tjaldsvæðið í Herjólfsdal. Eyjar.net/TMS

Vestmannaeyjabær bauð nýverið út rekstur tjaldsvæða og var tilboðsfrestur til 12. janúar sl.

Eitt formlegt tilboð barst og var það frá Aðalsteini Ingvasyni, Katrínu Harðardóttur, Helga Sigurðssyni og Evelyn Bryner, en einnig barst ósk um samtal frá ÍBV íþróttafélagi um reksturinn innan gefins tilboðsfrests.

Starfsfólk Vestmannaeyjabæjar fundaði með báðum aðilum og framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs fylgdi málinu eftir við bæjarráð. Hann lagði til að eina formlega tilboðinu sem barst yrði tekið.

Í afgreiðslu ráðsins segir að bæjarráð samþykki tillögu framkvæmdastjóra með tveimur atkvæðum og var honum falið að ganga frá samningi við tilboðsaðila. Eyþór Harðarson vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjar Open 2026 í pílukasti fór fram um helgina
ÍBV tapaði á heimavelli gegn ÍA
Hlynur Andrésson hljóp maraþon á EM í morgun
Aníta Óðinsdóttir – Tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í fyrsta sinn
Nýbyggingin við Tangagötu tekur á sig mynd
Mikilvæg stig í húfi hjá ÍBV á Hásteinsvelli
Íslandsmót golfklúbba í 2. deild karla hefst í Eyjum á morgun
Minna á lokanir við Viðlagafjöru
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.