Eitt af stærstu verkefnum Sjálfstæðisflokksins á síðasta kjörtímabili sem komst til framkvæmda með góðri samvinnu við Eyjalistann var án efa yfirtaka Vestmannaeyjabæjar á rekstri Herjólfs. Það mikla framfaraskref fyrir samfélagið tryggði mun tíðari ferðir eða 7 ferðir á dag til Landeyjahafnar alla daga ársins og að siglt yrði á stórhátíðardögum. Auk þess fá bæjarbúar nú tafarlaust 50% afslátt af fargjöldum án þess að þurfa að leggja inn tugþúsundir og allur hagnaður rekstursins mun fara í að auka þjónustu eða lækka fargjöld til farþega.
Kaldar kveðjur til fyrrverandi formanna
Á árlegum aðalfundi Herjólfs ohf. sem fram fór í dag var reynslumestu stjórnarmeðlimunum þeim Lúðvíki Bergvinssyni og Grími Gíslasyni, vikið úr stjórninni af meirihluta H- og E- lista, tveimur fyrverandi formönnum stjórnar Herjólfs ohf. sem leitt hafa verkefnið áfram og þekkja, án þess að á aðra sé hallað, eðli og umfang verkefnisins einna best enda sátu þeir ásamt Páli Guðmundssyni í stýrihóp fyrir Vestmannaeyjabæ sem sá um samningagerð við Vegagerðina og undirbúning yfirtöku rekstursins. Undirrituð telja það ekki bera hagsmuni verkefnisins fyrir brjósti þegar slík þekking og reynsla er virt að vettugi í verkefni sem er áætlað til tveggja ára.
Sjálfstæðisflokkurinn kýs stöðugleika
Það kom verulega á óvart að bæjarstjóri, sem heldur á eina hlutabréfi félagsins, hafi ekki staðið upp á fundinum, rætt mikilvægi verkefnisins og framtíðarsýn þess, né þakkað formlega á fundinum fráfarandi stjórnarmönnum sem hafa lagt ómælda ósérhlífna vinnu í verkefnið bæði við undirbúning yfirtökunnar og að koma verkefninu í framkvæmd. Slíkt er óásættanlegt gagnvart þeim einstaklingum sem hafa lagt mikið af mörkum við að bæta samgöngur við Vestmannaeyjar, eitt stærsta hagsmunamál okkar. Sjálfstæðisflokkurinn í Vestmannaeyjum hefur ávallt borið fullt traust til stjórnarmeðlima og kosið að gera engar breytingar á kjöri á sínum stjórnarmönnum, enda er stöðugleiki einmitt það sem verkefnið þarf. Að því sögðu væntum við mikils af störfum stjórnarmeðlima í því umfangsmikla verkefni sem þeir hafa fyrir höndum og megi þeir allir bera gæfu til að vinna ötullega að hagsmunum samfélagsins, Vestmannaeyingum öllum til heilla. Grími Gíslasyni og Lúðvíki Bergvinssyni færum við ómældar þakkir fyrir þeirra ómetanlega framlag til samgöngumála í Vestmannaeyjum um leið og við óskum þeim velfarnaðar í sínum framtíðarstörfum.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum
Hildur Sólveig Sigurðardóttir
Helga Kristín Kolbeins
Trausti Hjaltason





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.