Fjölgreindarleikum GRV lauk á Stakkó í gær

Hefðbundinni kennslu við Grunnskóla Vestmannaeyja lauk síðast miðvikudag og við tóku hinir árlegu fjölgreindarleikar.

“Leikarnir byggja á hugmyndum/kenningum Howards Gardners um fjölgreindirnar þar sem gengið er út frá því að allir séu góðir í einhverju og að allir eigi að fá tækifæri til að fást við það sem þeir eru sterkir í,” sagði Óskar Jósuason, aðstoðarskólarstjóri í samtali við Eyjafréttir í gær.

Sigurvegari í ár var lið nr. 5 en í liðunu er Gabríel Ari (fyrirliði), Ísak Máni, Erla Hrönn, Högni, Lovísa, Elsa Sigrún, Þuríður, Erla Donna, Emelía Rós, Tómas Arnar og Guðjón Emil.

“Með fjölgreindaleikum er verið að  búa til skemmtilegan viðburð þar sem nemendur og starfsfólk eiga góða daga við leik og skemmtun. Starfsmenn skólans fá að kynnast nemendum skólans á annan hátt og einnig gefst nemendum tækifæri á að kynnast hvert öðru frá 1. – 7. bekk.” Óskar sagði þrautirnar fjölbreyttar þar sem allir fá að spreyta sig á mismunandi verkefnum þar sem sterku hliðar hvers og eins fá að njóta sín.

Sá fyrirliði sem þótti standa sig best í ár var Embla Harðardóttir.

“Hver hópur er samansettur af nemendum úr 1. – 7. bekk þar sem elstu nemendur fá það hlutverk að vera fyrirliðar. Fyrirliðar fylgja sínum hóp og bera ábyrgð á honum allan daginn sem leikarnir eru. Þeir verða að hjálpa liðinu sínu í nestistíma og matartíma og einnig að passa upp á sína liðsmenn á milli stöðva. Hver hópur tekur þátt í 32 mismunandi þrautum og safna þannig stigum fyrir sitt lið.”

Fjölgreindarleikunum lauk svo í gær með verðlaunaafhendingarhátíð á Stakkagerðistúni í gær. En krakkarnir notuðu einnig tækifærið og rifjuðu upp danssporin frá því á danssýningu GRV á dögunum.

Óskar vildi nota tækifærið og þakka Pizza 67, JOY og 66°norður/Volare fyrir verðlaunin og Heildverslun KK fyrir ísinn.

Nýjustu fréttir

Hvað gerist næst
Jóhann Ingi skipar þriðja sætið á lista Miðflokksins
Líflegur framboðsfundur Eyjafrétta – upptaka
Herjólfur fer næstu ferðir til Þorlákshafnar
Sterk hagsmunagæsla
Hildur Rún skipar fjórða sæti á lista Eyjalistans 
Gústav Axel með kraftmikinn sjávarréttaseðil á Einsa Kalda á MATEY
Öflug menning mótar lífið
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.