Opið er fyrir ábendingar, tillögur og styrkumsóknir vegna síðari úthlutunar “Viltu hafa áhrif 2024?”
Markmið
Markmiðið með styrkjunum er að stuðla að auknu íbúalýðræði í Vestmannaeyjum með því að gefa fólki, fyrirtækjum og félagasamtökum tækifæri á að hafa áhrif á nærsamfélagið með góðum verkefnum. Fjölmargar góðar umsóknir og ábendingar hafa borist í gegnum tíðina. Má þar m.a. nefna styrki til fjölda sýninga, menningartengda bókaútgáfu, leiktæki á opnum svæðum og göngustíga.
Ábendingar og tillögur
Áhugasamir einstaklingar og aðilar í Vestmannaeyjum sem vilja koma fram tillögum eða ábendingum varðandi fjárhagsáætlun 2024, eru hvattir til að koma þeim til skila í síðasta lagi 2.maí 2024 á netfangið susanna@vestmannaeyjar.is, eða með hefðbundnum pósti á póstfangið Vestmannaeyjabær við Kirkjuvegur 50, 900 Vestmannaeyjum, b.t. Súsanna Georgsdóttir.
Styrkir
Á sama hátt er áhugasömum einstaklingum og aðilum bent á að sækja um styrki eða framlög vegna verkefna fyrir árið 2024, að senda umsóknir til bæjaryfirvalda í síðasta lagi 2.maí 2024 á sama netfang eða póstfang.
Í umsókninni þurfa að koma fram upplýsingar um nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang umsækjenda, lýsing á verkefninu, áætluð upphæð og framkvæmdatími (þar sem við á). Ef sótt er um styrk til fjárfrekra verkefna þarf að koma fram sundurliðuð áætlun um einstaka kostnaðarliði.
Skilyrði er að umsókninni fylgi greinargerð sem skýrir verkefnið sem sótt er um styrk til sem og síðasta skattframtal eða ársreikningur.
Áskilinn er réttur til að krefjast frekari gagna, þyki þess þörf, segir í tilkynningu frá Vestmannaeyjabæ.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.