Nú er sumarið að ganga í garð og þá hefjast hátíðarhöld í Eyjum. Fyrsta hátíð sumarsins hefst einmitt í annan dag sumars, þegar tónlistahátíðin Hljómey verður sett.
Að sögn Guðmundar Jóhanns Árnasonar, forsprakka hátíðarinnar hefur undirbúningur gengið mjög vel.
„Lokadrög að dagskránni verða vonandi birt á morgun, sunnudag. Það seldist upp á 6 tímum á hátíðina, þrátt fyrir að einungis 3 listamenn, af 13, höfðu verið kynntir þegar miðasala hófst. 300 miðar voru seldir á hátíðina í ár. Við teljum að það sé hin fullkomna tala, enda stofur heimamanna undir. 11 heimili verða með í ár og þegar allt er talið, hljóðmenn, listamenn og dyraverðir koma um 70 manns að hátíðinni með einum eða öðrum hætti. Þessa dagana erum við að klára að setja upp línulista og safna græjum í húsin. Listamennirnir sem koma fram í ár eru: Úlfur Úlfur, GDRN, KK, Jónas Sig ásamt hljómsveit, Molda, Muntra, Hipsumhaps, Helga og Arnór, Langi Seli og Skuggarnir, Foreign Monkeys, Klaufar, Elín Hall og Tríó Þóris Ólafssonar.“
Þá segir Guðmundur að vegna íþróttaviðburða í Eyjum á fimmtudaginn hafi skipuleggjendur ákveðið að færa setningu hátíðarinnar yfir á föstudag.
„Setningin verður í Landsbankanum þar sem tónlistarmenn munu spila, léttar veitingar verða í boði og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri mun setja hátíðina formlega. Á sama tíma verður afhending á armböndum á hátíðina. Allir eru velkomnir á setninguna.
Á fimmtudaginn munum við halda tónlistar pubquiz á Brothers Brewery þar sem allir eru velkomnir. Það verða veglegir vinningar í boði, m.a. armbönd á hátíðina. Það hefst kl 21:00.“
Aðspurður um hvort færri ferðir Herjólfs vegna árshátíðar hafi áhrif á hátíðarhald segir Guðmundur að það hafi ekki áhrif á listamenn hátíðarinnar.
https://eyjar.net/baerinn-og-hljomey-i-samstarf/
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst