Vígðu nýja bekki í miðbænum
6. maí, 2024
IMG_4859
Kristmann og Kristín tylltu sér á bekkinn sem þau gáfu. Eyjar.net/TMS

Á fimmtudaginn sl. fór fram kynning og vígsla á nýjum bekkjum í lýðheilsu- og samfélagsverkefninu “Brúkum bekki”. Nýju bekkirnir eru allir staðsettir í miðbænum.

Fram kom í máli Ólafar Aðalheiðar Elíasdóttur (Ólu Heiðu) – sem farið hefur fyrir verkefninu – að fyrir rúmum tveim árum hafi Unnur Baldursdóttir bent henni á þetta verkefni.

„Hún sagði bara svona Óla getur þú ekki farið í þetta, þú ert svo góð í svona.“

Hægt að setja sér markmið um vegalengd

Verkefnið hófst árið 2010 í tilefni af 70 ára afmæli Félags sjúkraþjálfara á Íslandi. Það var ákveðið að fara af stað með samfélagsverkefni sem hvatningu til aukinnar hreyfingar, til hagsbóta fyrir almenning.

Sjúkraþjálfarar á Akureyri riðu á vaðið og vígðu fyrstu tvær leiðirnar árið 2010. Verkefnið gengur út á að hvíldarbekkjum er komið fyrir með 200 -250 m millibili á eins kílómetra  merktri gönguleið.

Gönguleiðirnar eru t.d. nálægt íbúabyggð eldra fólks og félagsmiðstöðvum heldri borgara.
Verkefnið er hugsað fyrir þá sem eru orðnir slakir til gangs og eða þurfa að ná sér eftir aðgerðir og auðvitað alla aðra, t.d. gott að vita hversu löng gönguleiðin er og hægt að setja sér markmið um vegalengd.

Verkefnið í gangi víðar á landinu

Verkefnið er nú þegar á Akureyri, Húsavík, Höfn, Hveragerði, Hafnarfirði, Kópavogi, Garðabæ og Mosfellsbæ oftast framkvæmt í samvinnu við Félag eldri borgara og sveitarfélagið.

Þá kom fram í máli Ólu Heiðu að Anna Hulda Ingadóttir sjúkraþjálfari hafi ásamt Ólu fundað með formanni Félags sjúkraþjálfara um verkefnið og þar létu þær vita að þær hefðu áhuga á að koma verkefninu í gang hér í Eyjum. Formaðurinn fagnaði áhuga Ólu og Önnu á þessu verkefni. En þess má geta að félagið styrkti merkingar á bekkjunum.

Því næst var funduðað með fulltrúum Vestmannaeyjabæjar. Þar var ákveðið að fara í verkefnið og byrja á að fá fólk til aðstoðar. Dagný Hauksdóttir, Thelma Rós Tómasdóttir, Inga Fía og Linda Rós Sigurðardóttir hafa allar komið að verkefninu. Anna Hulda sjúkraþjálfari sá um að fá merkingar á bekkina.

Þrjár fjölskyldur gáfu bekki

„Við kortlögðum 4- 5 gönguleiðir, gengum leiðirnar og fórum yfir hvar ætii að staðsetja bekkina. Ákveðið var að setja í gang tvær leiðir. Fyrsta leiðin var við Hraunbúðir og svo þessi leið í miðbænum. Það þurfti 8 bekki á þessa leið. Fulltrúar frá Kvenfélaginu Heimaey komu síðasta sumar og færðu bænum 5 bekki. Fjórir þeirra eru staðsettir Hraunbúðaleiðinni og einn hér í miðbænum. Þá vantaði þrjá bekki hér á þessa leið. Þrjár fjölskyldur ákváðu þá að styrkja verkefnið og gefa bekkina.
Bekkina gáfu Kristmann Karlsson, Kristín og fjölskylda. Fjölskylda Elíasar Björnssonar til minningar um hann og Magnús Bragason, Adda og fjölskylda. Þökkum við þeim kærlega fyrir þetta rausnalega framlag.“

sagði Óla Heiða í ræðu sinni. Þá sagði hún að Linda Rós hafi útbúið kort gönguleiðunum og merkt bekki inn á kortin. Kortunum verður komið fyrir í Íþróttamiðstöðinni, í félagsmiðstöð eldri borgara, á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar, á sjúkraþjálfarastofum og á heilsugæslu HSU.

„Nú afhendum við Vestmannaeyjabæ og bæjarsamfélaginu þessa bekki með ósk um að öll umsýsla og umhirða á bekkjum verði í höndum sveitarfélagsins.“

Eftir ræðu Ólafar var gengið af stað og endað niður á bryggju þar sem boðið var upp á veitingar við einn af bekkjunum. Myndasyrpu frá bekkjarröltinu má sjá hér að neðan. Þar fyrir neðan má svo sjá kort af gönguleiðinni.

https://eyjar.net/fyrsta-gonguleidin-vigd/

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.