Súlurnar upp í dag

Það eru tveir dagar í þjóðhátíð og undirbúnigurinn stendur sem hæst. Í ár verða bílapassarnir armbönd sem verða afhent þeim sem á þurfa að halda  í dag miðvikudaginn 31. júlí frá kl. 9:00-16:00. Nauðsynlegt er að þeir eldri borgarar og fatlaðir sem þurfa að nýta passana mæti sjálfir í Týsheimilið að sækja armbönd

Í dag á einnig að fara með súlurnar og mikilvægt er að fólk mæti á tilsettum tíma með súlurnar á eftirfarandi tímum:

Reimslóð, Þórsgata, Týsgata  og Efri byggð – kl. 17:00

Ástarbraut, Veltusund og Klettar – kl. 17:45

Skvísusund og Lundaholur – kl. 18:30

Sigurbraut, Sjómannasund og Golfgata – kl. 19:15

Þeir sem tóku ekki frá lóð – kl. 20:00

Fyrri hluta miðvikudags verður lokað fyrir umferð í Herjólfsdal til að tryggja öryggi starfsmanna og gesta. Fimmtudag og föstudag verða búslóðaflutningar í Dalinn á eftirfarandi tímum.

Fimmtudag kl. 11:30 til 15:00 og 17:30 til 20:00.

Föstudag kl.  9:00 – 11:30.

Á öðrum tímum er dalurinn lokaður fyrir bílaumferð, segir í tilkynningu frá þjóðhátíðarnefnd.

Nýjustu fréttir

„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.