Þroskahefti VKB innkallað

Margar skemmtilegar hefðir hafa skapast í kringum Þjóðhátíð í Eyjum. Ein af þeim er útgáfa Þroskaheftis, þjóðhátíðarheftis Bræðrafélagsins VKB. Er þetta tólfta árið sem heftið er gefið út.

Blaðinu var dreift í gær í öll hús í Vestmannaeyjum og er jafnframt aðgengilegt á vefnum á stafrænu formi. Blaðið er bráðskemmtilegt en ber þó að lesa með réttu hugarfari.
Þroskahefti er á engan hátt ætlað sem lesefni undir öðrum en broslegum kringumstæðum. Þungbúinn lestur heftisins er með öllu óheimilaður og afsalar Bræðrafélagið VKB sér allri ábyrgð af slíkum lestri. Lestur heftisins er alfarið á ábyrgð lesandans. Heyranlegur lestur heftisins er mjög varasamur, varúð skal höfð í nærveru sálar. Heyrandi lesturs heftisins, svo og lesandinn sjálfur, kunna að hljóta alvarlega áverka, svo sem bros á vör eða kitl hláturtauga, séu sá eða sú ekki undir slíkt búið. Bræðrafélagið
Vinir Ketils Bónda leggur alla ábyrgð í hendur lesanda heftisins. Hafið því varan á,” segir í upphafi ritsins.

Í dag sendi svo ritstjórn Þroskaheftis frá sér tlikynningu um innköllun á heftinu.
„Því miður þá neyðumst við til þess að innkalla 2019 áganginn af heftinu. Pólitíks rétthugsun gleymdist í framleiðsluferlinu.
  Við viljum biðja alla sem vilja losa sig við gölluð eintök að stafla þeim upp fyrir framan viftuna í Herjólfsdal. Þar geta þau allavega gert eitthvað gagn og skyggt á þennan óskapnað.” segir í tilkynningunni á Facebooksíðu Þorskaheftis

Nýjustu fréttir

Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Arnór bestur í tapi Karlskrona
Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi
ÍBV sækir Hauka heim
Eyþór Harðarson efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.