Íbúakosning án frekari upplýsinga
Uppgröfur
Svona gæti svæðið litið út í upphafi moksturs á um 700 þúsund rúmmetrum af hrauni. Samsett mynd/Eyjar.net

Fyrr í mánuðinum samþykkti bæjarstjórn Vestmannaeyja að fara í íbúakosningu til að kanna hug íbúa, hvort hefja skuli vinnu við að byggja upp þróunarsvæðið M2 sem fór undir hraun í gosinu árið 1973 eða ekki. Fram kom í bókuninni að stefnt sé að því að íbúakosningin fari fram samhliða næstu alþingiskosningum.

Þar kom einnig fram að íbúakosning verði framkvæmd áður en lagt verði af stað í skipulagsvinnuna en ekki á miðri leið eða að henni lokinni. Eyjar.net óskaði þrátt fyrir þetta eftir svörum frá Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra um ákveðna þætti vegna málsins. Spurningar sem margir vilja hafa hugmynd um áður en gengið verður til kosninga um málið.

Líkt og hver sé áætlaður kostnaður við framkvæmdina, hversu mikið magn í rúmmetrum talið þurfi að fjarlægja, hvar hraunið verði sett sem mokað verður burt, hversu stór lóð verði í boði eftir moksturinn og hversu mikið byggingarmagn sé um að ræða.

Íris segir að það sem spurt sé um liggi eðlilega ekki fyrir og það sé einmitt kjarni málsins.

„Þess vegna viljum við fara í íbúakosningu ÁÐUR en lagt er í þann kostnað og fyrirhöfn sem fylgir því að vinna aðalskipulag og deiliskipuleggja í framhaldi, þá er hægt að svara þeim spurningum sem þú telur upp. Enda er verið að spyrja um svæði sem ekki kæmi inn í aðalskipulag fyrr en í fyrsta lagi eftir áratug eða seinna.
Ef meirihluti íbúa í Vestmannaeyjum vill ekki að þetta svæði verði nýtt til uppbyggingar þá verður það ekki tekið með í framtíðarskipulag og best er að vita það ÁÐUR en einhver vinnan hefst. Tillagan um íbúakosningu um þetta mál var samþykkt samhljóða í bæjarstjórn.“

segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja.

https://eyjar.net/samthykkt-ad-kanna-hug-ibua/

https://eyjar.net/2022-03-29-deilt-um-midbaejarskipulag-i-skipulagsradi/

Nýjustu fréttir

Hlynur bætti Íslandsmetið í hálfmaraþoni
Líflegt spjall á N1 við Friðarhöfn
Tjaldsvæði opnað inni í Herjólfshöll á Þjóðhátíð
Örlygur Helgi ,,fyrst og fremst heiður”
Mannabreytingar í nefndum bæjarins eftir flokkaskipti
Eyjamenn sækja Fram heim
Á rauðu ljósi í Reykjavík
Elmar kom að tólf mörkum fyrir Nordhorn

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.