Strákunum spáð 3. en stelpunum 4. sæti

Nú í hádeginu fór fram kynningarfundur vegna Olís- og Grill 66 deilda fyrir komandi handboltatímabil. Árleg spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna var kynnt að því tilefni. Karlaliði ÍBV er spáð 3. sæti í deildinni en stelpunum er spáð 4. sæti þetta árið. ÍBV tefli einnig fram U-liði í kvennaflokki í fyrsta skipti í Grilldeildinni en þeim er spáð 12. sæti í Grillinu í vetur.

Keppni í Olís-deild karla hefst á með tveimur leikjum á sunnudaginn þar sem ÍBV tekur á móti Stjörnunni kl. 16:00. Olís-deild kvenna hefst með þremur leikjum laugardaginn 14. september þá fær ÍBV Aftureldingu í heimsókn.

Spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna má sjá í heild sinni hér að neðan:

Olís-deild karla
1. FH – 378 stig
2. Valur – 370 stig
3. ÍBV – 331 stig
4. Haukar – 322 stig
5. Selfoss – 268 stig
6. Afturelding – 245 stig
7. Stjarnan – 224 stig
8. ÍR – 200 stig
9. KA – 165 stig
10. Fram – 125 stig
11. HK – 97 stig
12. Fjölnir – 83 stig

Olís-deild kvenna
1. Valur – 167 stig
2. Fram – 157 stig
3. Stjarnan – 111 stig
4. ÍBV – 108 stig
5. Haukar – 98 stig
6. KA/Þór – 89 stig
7. HK – 74 stig
8. Afturelding – 60 stig

Grill 66 deild karla
1. Þór Ak. – 141 stig
2. Grótta – 125 stig
3. Víkingur – 115 stig
4. Valur U – 103 stig
5. Þróttur – 90 stig
6. Haukar U – 88 stig
7. FH U – 68 stig
8. KA U – 54 stig
9. Fjölnir U – 50 stig
10. Stjarnan U – 46 stig

Grill 66 deild kvenna
1. FH – 205 stig
2. Selfoss – 194 stig
3. Valur U – 191 stig
4. ÍR – 174 stig
5. Fram U – 170 stig
6. Grótta – 156 stig
7. Fjölnir – 151 stig
8. Fylkir – 119 stig
9. Stjarnan U – 109 stig
10. HK U – 96 stig
11. Víkingur – 80 stig
12. ÍBV U – 71 stig

Nýjustu fréttir

Foreign Monkeys gefa út þriðju breiðskífu sína – „III“
Úttekt á fasteignagjöldum ársins
Mikil gróska í fimleikastarfi og mót framundan
Hlutafjáraukning Eyjaganga langt komin
Áframhaldandi hvassviðri út vikuna  
Áætlun um rýmingu Heimaeyjar eftir að Surtsey fór að gjósa
Loðnu að finna á stóru svæði
Íbúakosning samhliða næstu sveitarstjórnarkosningum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.