Vinir í bata - 12-spora hópastarf hefst í september

Boðið verður upp á 12-spora hópastarf í Landakirkju í vetur. Við köllum okkur vini í bata og vinnuna köllum við Andlegt ferðalag. Þetta er fyrir alla sem vilja vinna með tilfinningar sínar af einlægni og kynnast sjálfum sér og Guði betur.

Kynningarfundur verður mánudaginn 16. september kl. 18:30 í Safnaðarheimili Landakirkju. Fyrstu þrír fundirnir eru opnir öllum til þess að kynnast starfseminni og reyna aðferðina. Eftir það eru myndaðir svokallaðir fjölskylduhópar og ekki bætt fleirum við.

Áhersla er lögð á nafnleynd, trúnað og traust. Nánari upplýsingar um þessa vinnu er á heimasíðu vina í bata www.viniribata.is Við notum vinnubók sem heitir Tólf sporin Andlegt ferðalag, hún fæst í bókabúðinni.

Allir velkomnir.
Vinir í bata Vestmannaeyjum

Nýjustu fréttir

Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu
Ferðaþjónustan er öflug atvinnugrein sem þarf tryggar samgöngur
Gul viðvörun á Suðurlandi: Búist við þrumuveðri
Evrópudagur talþjálfunar er í dag
Forsala á Þjóðhátíð 2026 hafin
Hitastig sjávar að vetri aldrei verið hærra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.