Framkvæmdir hafnar við síðasta áfangann
linuborun_0423
Ljósleiðari lagður. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Starfsmenn Línuborunar hafa nú hafið jarðframkvæmdir á þriðja og seinasta áfanga lagningu ljósleiðara.

Á vef Vestmannaeyjabæjar eru íbúar á því svæði beðnir um að fara yfir áætlaða leið og hafa samband á netfangið: ljosleidari@vestmannaeyjar.is ef áætluð leið hentar illa.

Umferð á meðan framkvæmdum stendur

Starfsmenn Línuborunar notast við götufræsara sem fræsir 10-15cm rauf í götur og jarðveg og leggja síðan blástursrör þar ofan í. Með þessari aðferð er hægt að leggja ljósleiðara án þess að loka götum. Bílar geta auðveldlega keyrt yfir raufina. Fólk á hjólum þarf hins vegar að gæta varúðar í kringum framkvæmdirnar þar sem framhjólin eiga það til að snúast þegar þau hitta á raufina og hjólreiðamaður gæti hæglega skollið fram fyrir sig. Þetta á við um öll hjól, þ.m.t. reiðhjól, hlaupahjól og vélhjól.

Einnig er hætta á að rigning geti skolað jarvegi úr uppfylltum raufum og við það myndast brún sem getur verið óþægilegt að hjóla á. Línuborun mun leggja alla áherslu á að framkvæmdin muni hafa eins lítil áhrif og möguleiki er á. Raufum verður lokað svo fljótt sem auðið er svo allt jarðrask verði íbúum til minnstu trafala.

Til að sjá áætlaðar leiðir má smella hér.

Nýjustu fréttir

Stelpurnar klárar í slaginn
Jóna Heiða með sýningu í Sagnheimum
Eldsneytisvandi í Eyjum ratar á Alþingi
Spurt og svarað: Anton Örn frá Eyjalistanum
Gröfuþjónusta Brinks lægstbjóðandi í gatnagerð og fráveitu í Miðgerði
Sumarið heilsar með stórleik
ÍBV í lykilstöðu eftir sigur gegn Haukum
Dagskráin á sumardaginn fyrsta
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.