Áætlun Herjólfs breytist

Á morgun, mánudag breytist áætlun Herjólfs tímabundið. Ferjan mun þá sigla átta ferðir á dag í stað sjö og verður sú áætlun í gildi til 11.08.2024.

Fram kemur á heimasíðu skipafélagsins að megin tilgangur og markmið með rekstri Herjólfs ohf. sé að bæta þjónustu við viðskiptavini félagsins og ekki síst samfélagið sjálft.

Því var tekin ákvörðun um að bæta við áttundu ferðinni í siglingaráætlun skipsins á tímabilinu 1. júlí – 11. ágúst 2024. Með öflugri markaðssetningu og aukningu ferða hefur farþegum og bílum fjölgað mikið á þessu tímabili síðustu tvö ár, með aukningu ferða er verið að koma til móts við aukna eftirspurn.

Áður auglýst siglingaáætlun um verslunarmannahelgina helst óbreytt. Um er að ræða daganna 2-5 ágúst.

Allir þeir farþegar sem eiga bókað á þessu tímabili eiga að vera búnir að fá uppfærð brottfaraspjöld með nýjum tímasetningum. Brottfarir koma til með að færast sem hér segir:

Vestmannaeyjar brottför

07:00 – Óbreytt

09:00 – Áður ferð kl. 09:30

11:00 – Áður ferð kl. 12:00

13:00 – Ný ferð í áætlun

16:00 – Áður ferð kl. 14:30

18:00 – Áður ferð kl. 17:00

20:00 – Áður ferð kl. 19:30

22:00 – Óbreytt

Landeyjahöfn brottför

08:00 – Áður ferð kl. 08:15

10:00- Áður ferð kl. 10:45

12:00 – Áður ferð kl. 13:15

14:00 – Ný ferð í áætlun

17:00 – Áður ferð kl. 15.45

19:00 – Áður ferð kl. 18:15

21:00 – Áður ferð kl. 20:45

23:00 – Áður ferð kl. 23:15

Nýjustu fréttir

ÍBV í lykilstöðu eftir sigur gegn Haukum
Dagskráin á sumardaginn fyrsta
Tilboð upp á 480 milljónir í Ægisgötu 2
Barnamenningardagar settir í dag
Efri árin skipta máli
Alvarleg staða samgöngumála: Kallað eftir tafarlausum aðgerðum
Eldsneytisvandi í Eyjum
Segir þingmenn tala öðruvísi í Eyjum en í Reykjavík
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.