Segir niðurfærslu Gamma:Novus ekki standast
2. október, 2019

Framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja segir að niðurfærsla á gengi Gamma:Novus rekstrarsjóðsins sé litið grafalvarlegum augum. Lífeyrissjóðurinn fjárfesti í Novus fyrir tveimur árum og hlutaféð hefur nánast þurrkast út. Stjórnendur Gamma sendu fjárfestum skýringar á niðurfærslum tveggja sjóða á mánudag.

Gengi tveggja sjóða í rekstri Gamma, eða Gamma:Novus og Gamma:Anglia, var fært verulega niður á mánudag. Þannig fór gengi í Gamma:Novus frá því að vera 183,7 í að vera metið á tveir og gengi í Gamma:Angla úr 105 í 55. Novus er fasteignafélag sem heldur utan um byggingar hér á landi en Anglia hefur fjárfest í fasteignaþróunarverkefnum í Bretlandi. Meðal þeirra sem hafa fjárfesti í þessum sjóðum eru íslenskir lífeyrissjóðir. Haukur Jónsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja, segir að niðurfærslan í Gamma:Novus hafi valdið miklum vonbrigðum.

„Í árslok 2013 fjáfestum við fyrir hundrað milljónir í Gamma Novus og í árslok 2013 fáum við endurgreiðslu í formi sölu upp á 34 milljónir króna. Þannig að nettó staðan er 66 milljónir. Verðmatið samkvæmt gengi fer úr 155 milljónum í 1,7 milljónir,“ segir Haukur.

Fundað í hádeginu

Nýir stjórnendur Gamma sendu fjárfestum skýringar á niðurfærslunni á mánudaginn en þar kemur fram að ástæðan sé að framvinda verkefna hafi verið ofmetin. Framkvæmdakostnaður yfir áætlunum. Ekki hafi verið að fullu tekið tillit til fjármagnskostnaðar félagsins vegna skuldabréf og þróun um söluverð íbúða og þróunareigna hafi verið endurmetin.

„Augljóslega eru þetta ekki nægjanlegar skýringar og við tökum málið sérstaklega fyrir á stjórnarfundi sjóðsins í hádeginu. Eðlilega viljum við fá nánari skýringar,“ segir Haukur, sem telur niðurfærsluna ekki standast.

„Við lítum á málið mjög alvarlegum augum og það er ekkert sem við sjáum að geti valdið því að þetta fari svona mikið niður nánast í ekki neitt.“

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, taldi þörf á rannsókn á niðurfærslu sjóðanna í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. Haukur segir að eftirlit með fjármálamarkaði geti stigið inn.

„Ég bendi á að Fjármálaeftirlitið sem á að sinna þessum störfum. Við eigum eftir að taka ákvörðun um hvort við kærum málið.“

Visir.is greindi frá

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
6. tbl. 2025
6. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.