Tyrkjaganga – annar hluti
Ragnar Óskarsson. Skjáskot/youtube

Í gær sýndum við fyrsta hluta af þremur frá Tyrkjaránsdögum í boði Sögusetursins 1627 í Vestmannaeyjum.

Á þessu ári eru liðin 397 ár frá því að ræningjar frá Alsír komu hingað til Vestmannaeyja þar sem þeir rændu, rupluðu,  drápu 36 íbúa og tóku 242 manneskjur með sér á þrælamarkaði í Alsír. Þessir atburðir mörkuðu djúp spor í sögu Vestmannaeyja og því er full ástæða til að minnast þeirra og miðla milli kynslóða Eyjamanna.

Komið var saman við Landakirkju í gær og nokkrir þættir úr sögu hennar ræddir. Gengið að Stakkagerðistúni að minnisvarða um Guðríði Símonardóttur. Þá var gengið á Skansinn þar sem rætt var um ýmsa sögulega þætti Tyrkjaránsins. Boðið upp á kaffi og svaladrykki. Göngustjóri var Ragnar Óskarsson.

Horfa má á upptöku Halldórs B. Halldórssonar frá Stakkagerðistúni hér að neðan. Dagskráin heldur áfram í dag.

Nýjustu fréttir

Úti er ævintýri
Áhyggjur af útbreiðslu lúpínu og kerfils
Baldur áfram varaskip Herjólfs vegna tafa á viðgerð
Alexandra Ósk, Ásdís Halla og Birna María eru mættar til Kína með u-20 ára landsliðinu
Laxey sækir 6,7 milljarða í nýtt hlutafé
Myndband frá Haugasvæðinu: Vinnan komin á fullt
Eyjakonur töpuðu heima gegn Breiðablik
Þétt setinn skóli þegar haustönn hefst
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.