Ábendingar til pysjubjörgunarmanna
25. ágúst, 2024
Lundapysja við það að fá frelsið. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Nú stendur pysjutíminn sem hæst og margir að hjálpa pysjum aftur út á sjó. Í tilkynningu á Facebook-síðu Sea Life Trust segir að það hafi verið mikið um það að þangað hafi verið komið með slasaðar og illa hirtar pysjur vegna rangrar meðferðar.

Starfsmenn Sea Life vilja því árétta nokkrar grunnreglur sem nauðsynlegt er að hafa í huga þegar pysjur eru annars vegar:

1. Alls ekki sleppa pysjunum í höfnina eða við Skansinn. Þær verða olíublautar og drukkna við það.
2. Alls ekki sleppa pysjum á móti strangri vindátt, þær fjúka aftur í bæinn og höfum við verið að fá mikið slasaðar og lamaðar pysjur eftir að hafa fokið.
3. Ekki setja pysjurnar í bað eða leika ykkur með þær, við það eykurðu stessið hjá og þá er hætta á að þær missi vatnsheldnina.
4. Hafðu pysjuna í kassa með grasi í botninum og geymdu hana á rólegum stað.
5. Vertu alltaf í hönskum þegar þú nærð pysjunni svo olían af höndunum þínum smitist ekki yfir á fjaðrir pysjunnar.
6. Ekki láta lítil börn undir 5 ára sleppa pysjunum. Það er voða krúttlegt að sjá þau sleppa þeim en það er ekki gott fyrir pysjuna.
7. Ef pysjan er með sár eða þú ert ekki 100% viss um að það megi sleppa henni skaltu koma með hana á Beluga Sanctuary í eftirlit.
Mundu að lundapysjur eru ekki leikföng!!

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst