Ófært til Landeyjahafnar
24 DSC 4724
Herjólfur. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Ófært er orðið til Landeyjahafnar vegna ölduhæðar, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf.  Þar segir jafnframt að Herjólfur sigli því til Þorlákshafnar seinni partinn í dag. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 17:00. Brottför frá Þorlákshöfn kl. 20:45.

Þeir farþegar sem áttu bókað kl. 18:15, 19:30, 22:00 og 23:15 eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu Herjólfs til þess að færa bókun sína.

Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni. Herjólfur stefnir á að sigla til Landeyjahafnar á morgun skv. áætlun.

Nýjustu fréttir

ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Lokadagur TM-mótsins: Gleði, keppni og ógleymanlegar minningar
Vestmannaeyjabær: Ráðið í stöðu deildarstjóra launadeildar
Tæplega 2.000 farþegar nýttu áætlunarflugið
Rakel býður upp á Reikiheilun í Eyjum
ÍBV sækir Þrótt heim í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.