Samningar undirritaðir um einstakt listaverk

Það var bjart yfir í Vestmannaeyjum í morgun þegar menningar- og viðskiptaráðherra og Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri undirrituðu í dag samning á milli ráðuneytisins og Vestmanneyjarbæjar sem tryggir verkefnastyrk vegna aðkomu að listaverki eftir Ólaf Elíasson. Vestmanneyjarbær festi í dag kaup á sérhönnuðu verki eftir listamanninn í tilefni að 50 ár eru liðin frá goslokum í Heimaey en hönnun og undirbúningur við verkið er þegar hafinn. Þetta kemur fram í tilkynningu menningar- og viðskiptaráðuneytisins.

Undirritunin fór fram undir Eldfelli í Vestmannaeyjum og var við tilefnið einnig undirritaður samningur við listamanninn Ólaf Elíasson sem viðstaddur var í gegnum fjarfundarbúnað. Ólafur lýsti yfir mikilli tilhlökkun yfir því að koma sem fyrst aftur til Eyja og hefjast handa en hönnunarferlið hefur staðið yfir í rúmt ár.

Verkfræðilega flókið listaverk

Listaverkið verður einstakt á heimsvísu og það eina sem inniheldur eldfjall. Verkið er verkfræðilega flókið og samanstendur af listaverki og gönguleið sem staðsett verður á Eldfelli og mun virkja skilningarvit gesta með litabreytum sem hannaðar eru í kringum staðsetningu verksins með tillit til sólar og landslags. Ráðuneytið mun styrkja gerð göngustígs sem listamaðurinn hannaði og er hluti af listaverkinu en gönguleiðin liggur í hring og í gegnum verkið og gerir gestum fært að upplifa verkið til fullnustu frá mismunandi sjónarhornum. Göngustígurinn er hannaður með sjálfbærni í huga og fellur vel að náttúrunni og mun ekki skilja eftir sig spor verði kosið að fjarlægja hann í framtíðinni.

„Það skal engan undra að einn af okkar helstu listamönnum sem er eftirsóttur um allan heim skuli velja Vestmannaeyjar fyrir eitt af sínum merkustu og framsæknustu verkum. Það er ekki síst að þakka hugrekki og framsýni bæjarstjórnar og ég er fullviss um að þetta verk verður gríðarlegt aðdráttarafl á heimsvísu,“

sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttir við undirritun samningsins í Vestmannaeyjum í morgun. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri segir mikil gæði vera fólgin í því að vefja list og menningu í landslag bæjarins, ekki síst á þessum tímamótum.

„Listir og menning gefa lífinu lit og ég er ákaflega þakklát fyrir stuðninginn frá menningar- og viðskiptaráðherra, Alþingi og ríkisstjórninni.“

Páll Magnússon forseti bæjarstjórnar var viðstaddur athöfnina og tók undir orð bæjarstjórans í blíðskapar veðri undir hraunbreiðunni og sagðist fullur tilhlökkunar.

„Ég er viss um að við munum horfa til þessa dags með stolti, vonandi að ári liðnu, þegar fyrsti áfanga verksins lýkur.“

Fleiri myndir frá undirskriftinni má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

Birgir Nielsen um tónlistina og lífið á skólabekk  
Ráðið segir tafir sýna mikilvægi betri undirbúnings
Opnunarhátíð Sea Life – myndasyrpa
Ísfélagið á vörusýningu á Englandi
Perlað fyrir von og samstöðu í Höllinni í dag
ÍBV sigraði Stjörnuna í Eyjum
Könnun sýnir breytt fylgi flokka í Eyjum
Ræddu kvartanir og þjónustu við fulltrúa Terra

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.