Að vöruflutningar með strandsiglingum verði efldir
Fraktari Tudra
Vöruflutningar með skipum er orkuhagkvæmari flutningaleið en á landi þar sem eldsneytisnotkun er talsvert minni með skipum en bifreiðum fyrir hvert tonn sem flutt er. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra hefur falið Vegagerðinni að greina möguleika og móta aðgerðir til að efla vöruflutninga á sjó meðfram ströndum landsins í stað flutninga á þjóðvegum landsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu.

Langstærstur hluti vöruflutninga hér á landi fer fram með bifreiðum um þjóðvegi. Álag á vegi hefur aukist hratt á undanliðnum árum, þ.m.t. umferð þungra bifreiða, með tilheyrandi fjárfestingum í viðhaldi vega. Vöruflutningar hafa einnig umtalsvert kolefnisspor og orkuskipti komin skemmra á veg í stærri biðreiðum.

„Ég tel afskaplega mikilvægt að hraða vinnu við að skapa betri umgjörð fyrir vöruflutninga á sjó með strandsiglingum. Vöruflutningar með skipum er orkuhagkvæmari flutningaleið en á landi þar sem eldsneytisnotkun er talsvert minni með skipum en bifreiðum fyrir hvert tonn sem flutt er. Ég hef því farið þess á leit við Vegagerðina að hefja vinnu við að greina möguleika og móta forgangsraðaðar aðgerðir til að efla strandflutninga í góðu samráði við hagaðila á sviði vöruflutninga,“ segir Svandís Svavarsdóttir.

Vegagerðin fer með veghald á þjóðvegum landsins og gegnir víðtæku hlutverki varðandi hafnir og siglingar. Stofnuninni er falið að skila niðurstöðum um greiningu á möguleikum til aukinna strandsiglinga við Ísland fyrir 15. desember nk.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.