Óskar Ólafi Jóhanni velfarnaðar í starfi
OJ 20230804 142833
Ólafur Jóhann Borgþórsson

Á þriðjudaginn var greint frá því að búið væri að ganga frá ráðningu á nýjum framkvæmdastjóra Herjólfs ohf. Ólafur Jóhann Borgþórsson, tekur við starfinu um áramót af Herði Orra Grettissyni.

Ólafur er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum, og þekkir því ágætlega til í nýju starfi. Hann segir í samtali við Morgunblaðið í dag að starfið sé spenn­andi tæki­færi fyr­ir sig, sem og að flytja heim til Vest­manna­eyja og tak­ast á við nýj­ar áskor­an­ir.

„Von­andi verður það til heilla að fá fram­kvæmda­stjóra sem er van­ur að fara með bænin­ar sín­ar, svo Land­eyja­höfn verði meira opin yfir árið,“ seg­ir Ólaf­ur í samtali við Morgunblaðið.

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri og handhafi hlutabréfs Herjólfs ohf. segir í samtali við Eyjafréttir að stjórnarformaður Herjólfs ohf hafi upplýst hana um samhljóða ákvörðun stjórnar Herjólfs um að ráða Ólaf Jóhann Borgþórsson sem framkvæmdarstjóra Herjólfs ohf. „Ég treysti mati stjórnarinnar og óska Ólafi Jóhanni velfarnaðar í starfi.“ segir Íris.

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Kjartan Vídó frá Sjálfstæðisflokknum.
“Selfies” eru ekki hagsmunagæsla
ÍBV – Haukar: Einvígið heldur áfram
Ágæt veiði hjá Eyjunum
Rafmagn fór af allri eyjunni: „Greitt fyrir öryggi sem hélt ekki“
Börn í Eyjum mega þola löng ferðalög, lítinn svefn og óvissu
Dýpkun mistókst í morgun – reynt aftur í kvöld
Laxey og AKVA group semja um nýja seiðastöð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.