Siglt síðdegis
20250302_203716
Herjólfur við bryggju. Myndin er tekin í gær. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar seinni ferð dagsins. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 16:00 og frá Þorlákshöfn kl. 19:45, segir í tilkynningu frá skipafélaginu en ekki var hægt að sigla neitt í gær vegna veðurs og ölduhæðar.

Þeir farþegar sem ætla sér að nýta gistirými ferjunnar eru minntir á að koma með sinn eiginn búnað. Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni. Strætó fer kl 18:00 frá mjódd til Þorlákshafnar.

Ennfremur segir í tilkynningunni að Herjólfur sigli til Þorlákshafnar fyrri ferð dagsins á morgun, þriðjudag. Brottför frá Vestmannaeyjum kl.  07:00. Brottför frá Þorlákshöfn kl.  10:45.

Vakin er athygli farþega á að samkvæmt veður- og sjólagsspá er spáð hækkandi ölduhæð og versnandi veðri síðdegis á þriðjudaginn, 4.mars.  Farþegar sem hafa tök á eru hvattir til að ferðast fyrr frekar en seinna. Varðandi siglingar síðdegis á morgun, þriðjudaginn 4.mars, verður gefin út tilkynning fyrir kl. 15:00 á morgun.

Nýjustu fréttir

Gildin sem móta okkur
Til Sjálfstæðismanna
ÍBV með mikilvægan sigur gegn Fram
Hlynur bætti Íslandsmetið í hálfmaraþoni
Líflegt spjall á N1 við Friðarhöfn
Tjaldsvæði opnað inni í Herjólfshöll á Þjóðhátíð
Örlygur Helgi ,,fyrst og fremst heiður”
Mannabreytingar í nefndum bæjarins eftir flokkaskipti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.