Íslands- og bikarmeistari við stjórnvölinn í Deloitte
Þriðja stærsta skrifstofa Deloitte á landinu

Vigdís Sigurðardóttir sem stýrir Deloitte í Vestmannaeyjum er fædd og uppalin Eyjakona. Hún gerði garðinn frægan sem markmaður í handboltanum með landsliðinu og varð Íslands- og bikarmeistari með bæði ÍBV og Haukum. Maður hennar er Erlingur Richardsson þjálfari í handbolta. Börnin halda uppi merki þeirra, Sandra spilar með Metzingen í þýsku Bundesligunni, Elmar með Nordhorn í þýsku í B-deildinni og Andri er einn af máttarstólpum ÍBV í Olísdeildinni. Vigdís er viðskiptafræðingur með meistaragráðu í reikningshaldi og endurskoðun og hefur starfað hjá Deloitte með hléum síðan 1999. „Það má segja að við þjónustum alla öllum, einstaklingum, fólki með rekstur og endurskoðun hjá stærri félögunum. Ekki bara í Vestmannaeyjum  heldur um allt land,“ segir Vigdís. „Starfsemin í Eyjum skiptist í þrennt; endurskoðun, uppgjör og bókhald.

Verkefnin eru í bland Eyjaverkefni og verkefni ofan af landi en með aukinni tölvuvæðingu þá hefur fjarvinna aukist mikið og myndi ég segja að staðsetning verkefna skipti minna máli í dag en það gerði áður. Þessi möguleiki á fjarvinnu hefur gert okkur kleift að efla skrifstofuna okkar með góðu fólki og efla okkur í starfi með fjölbreyttari verkefnum. Vigdís segir reksturinn ganga vel og er ánægð með sitt fólk. „Það góða við Vestmannaeyjar er að við höldum fólki vel og það er ánægt í vinnunni. Við erum tíu og sjáum alveg fyrir okkur að geta orðið stærri í framtíðinni. Það er nóg að gera og auðvelt að vinna hvar sem er, sem er alveg meiriháttar. Stjórnendur Deloitte  er mjög jákvæð í okkar garð og styður okkur í að stækka,“ segir Vigdís.

Skrifstofan hér er sú þriðja stærsta hjá Deloitte á landinu. „Þó Vestmannaeyjar séu ekki stór bær erum við heppin með verkefni. Það er litið til okkar mjög jákvæðum augum. Það fjölgar í bænum og maður sér að fólk vill flytja út á land. Það getur tekið vinnuna með sér og í því eru tækifæri fyrir okkur og önnur fyrirtæki.“ Vigdís segir vinnutímann þægilegan en líka sveigjanlegan. „Fólk getur unnið af sér eða bætt upp ef þannig stendur á,“ segir Vigdís. En hvernig viðskiptavinir eru Vestmannaeyingar? „Þeir eru langbestir, erum við ekki alltaf best?“ svarar hún hlæjandi.

 

Nýjustu fréttir

Alls útskrifuðust 45 nemendur frá FÍV af sex brautum
Kraftmikil önn og árangur nemenda í forgrunni
Halli Geir Evrópumeistari í sjómanni  
Sjórinn var aldrei í plönunum, segir Sigurhanna
Sjómannadags fjör í Höllinni: myndasyrpa
Myndir frá sjómannafjöri á bryggjunni
Skötuveisla sem stendur undir nafni
Íþróttafélagið Ægir fór í keppnisferð til Danmerkur

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.