Siglt til Þorlákshafnar síðdegis
DSC_4117
Herjólfur á leið til Þorlákshafnar. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Vegna versnandi aðstæðna í Landeyjahöfn siglir Herjólfur til Þorlákshafnar seinni partinn í dag. Þetta segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf. Brottför er frá Vestmannaeyjum kl. 16:00 og frá Þorlákshöfn kl. 19:45.

Aðrar ferðir eru ekki á áætlun. Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni. Þeir farþegar sem ætla sér að nýta gistirými ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eiginn búnað.

Hvað varðar siglingar fyrir laugardag, þá verður gefin út tilkynning í síðasta lagi fyrir kl. 06:00 í fyrramálið.

Nýjustu fréttir

Siglingar til Landeyjahafnar háðar kjöraðstæðum
Alanys semur við ÍBV til tveggja ára
Bein útsending: Staða ferðaþjónustunnar rædd við þingmenn
Skipulag við Strandveg 44 til bæjarstjórnar
Skjöldur í þriðja sinn 
Er verið að leggja landsbyggðarskatt á okkur?
Borkjarnar á fyrirhuguðu dýpi Eyjaganga betri en vænst var
Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.