Hraðskákmeistamót Vestmannaeyja 2025 verður haldið fimmtudaginn 1. maí nk. kl. 13.00 í skákheimili TV að Heiðarvegi 9. Tímamörk á hvorn keppenda 5 mín. + 3 sek. fyrir hvern leik og má reikna með að hver skák taki 10-12 mín.
Hraðskákmeistaramótið gefur skákstig eftir reglum Fide. Skráning keppenda fer fram hjá skákstjóra Sæmundi Einarssyni á netfangið saemi.einars@gmail.com eða á skákstað frá kl. 12.30 keppnisdaginn.
Aðalfundur Taflfélagsins var haldinn 24. mars sl. Í skýrslu stjórnar kom fram að starfsemin hafði verði í föstum skorðum, Skákþingi Vestmannaeyja 2025 og seinni hluta Íslandsmóts skákfélaga 2024-25 var þá nýlokið en TV var með þrjár keppnisveitir á mótinu. Skákkennsla fyrir ungmenni í Grunnskóla Vm. á vegum TV fer fram einu sinni í viku á haust- og vorönn í skákheimilinu.
Karl Gauti Hjaltason, sem verið hefur formaður TV frá 2023 gaf ekki kost á sér til endurkjörs þar sem hann var kjörinn alþingismaður 30. nóv sl.. Í hans stað var Hallgrímur Steinsson kjörinn formaður og gjaldkeri og Sæmundur Einarsson varaform./ritari og aðrir í stjórn eru Sigurjón Þorkelsson, Auðunn Haraldsson og Ágúst Ómar Einarsson.
Á árinu 2026 verða 100 ár liðin frá stofnun Taflfélags Vm. Í afmælisnefnd voru kjörnir, fyrrv. og núv. form TV, þeir Arnar Sigurmundsson, Karl Gauti Hjaltason, og Hallgrímur Steinsson og munu þeir leggja fram tillögur á hvern hátt félagið hyggst minnast þessa merkisatburðar á afmælisárinu, segir í tilkynningu frá TV.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.