Húsið Dalur sem byggt árið 1906 og er við Kirkjuveg 35 er að kveðja en nýtt húsí sama anda mun rísa að Kirkjuvegi 29 þar sem áður stóð húsið Sólvangur. Upphaflega átti Dalur að víkja fyrir nýju fjölbýlishúsi sem Daði Pálsson og Sigurjón Ingvarsson eru að reisa við Sólhlíð. Átti að flytja það yfir gatnamótin þar sem Sólvangur stóð áður. Búið var að reisa grunninn en þegar til átti að taka var húsið svo illa farið að ekki var hægt að flytja það. Var byrjað að rífa það í morgun.
„Þetta er búið að taka allt of langan tíma en nú er niðurstaða komin,“ sagði Sigurjón í samtali við Eyjafréttir í dag. „Hús, 100 ára og eldri eru friðuð en Dalur hefur tekið miklum breytingum frá því það var byggt 1906. Austurgaflinn fauk af í kringum 1950 og við sjáum á dagblöðum milli þilja frá þeim tíma og í kringum 1940 að húsið hefur verið endurnýjað í gegnum tíðina. Einnig voru gerðar á því breytingar fyrir tíu árum.“
Sigurjón segir að auðvitað sé eftirsjá af húsinu en nýtt verði reist á Sólvangslóðinni. „Það verður byggt að mestu eftir sömu teikningu og mun uppfylla allar nútímakröfur sem gerðar eru til íbúðarhúsa í dag.“ sagði Sigurjón.
Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu: Árni Sigurðsson byggði húsið en þar hafa búið Guðrún Bergsteinsdóttir, Magnús Þórðarson, Oddur Sigurðsson og Lovísa Magnúsdóttir, Valur Oddsson um 1973, Kristján Þór Kristjánsson, Þorgeir Baldursson og Páll Heiðar Högnason.
Heimild Heimaslóð.
Hér neðst má sjá myndband Halldórs B. Halldórssonar frá niðurrifinu í dag. Í seinni hluta myndbandsins bregður hann sér á bryggjuna þar sem byrjað er að ramma Gjábakkann.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst