Áhersla á halda jarðraski í lágmarki
Frá jarðvegsframkvæmdunum á Nýja hrauni.

Nú standa yfir framkvæmdir við lagningu tveggja nýrra rafstrengja frá landi til Eyja. Talsvert jarðrask er á Nýja hrauni vegna framkvæmdanna og hafa nokkrir áhyggjufullir bæjarbúar haft samband við ritstjórn Eyjafrétta vegna þessara jarðvegsframkvæmda.

Að sögn Steinunnar Þorsteinsdóttur, upplýsingafulltrúa Landsnets eru framkvæmdir við lagningu jarðstrengshluta Vestmannaeyjalínu 4 og 5 í Vestmannaeyjum í fullum gangi.

„Strengirnir  munu liggja frá Gjábakkafjöru og að tengivirki Landsnets við Skansveg, um 1,5 km leið.  Lagðir hafa verið 2 af þeim 4 strengleggjum sem fyrirhugaðir eru í Vestmannaeyjum og jarðvinna við strengskurð hinna tveggja langt komin.  Áætlað er að framkvæmdum ljúki í september.  Lagningu jarðstrengja fylgir óhjákvæmilega jarðrask á meðan á framkvæmdum stendur en lögð er áhersla halda því í lágmarki og endurnýta, eins og kostur er, núverandi gróður og jarðveg við yfirborðsfrágang. Verkið er unnið í góðri samvinnu við Vestmannaeyjabæ,” segir Steinunn í samtali við Eyjafréttir.

Nýjustu fréttir

Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
50 ár frá opnun sundlaugar Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.