Eyjamaður haslar sér völl
Nokkvi Sv Cr
Nökkvi Sveinsson í RB Rúm. Eyjafréttir/Eyjar.net: Ásmundur Friðriksson

Nökkvi Sveinsson, flugmaður, fyrrverandi knattspyrnumaður með ÍBV og Eyjapeyji haslar sér nú völl ásamt félögum sínum í viðskiptalífinu. Með honum í hópi eru Óskar Bragi Sigþórsson, flugmaður, og Þorvaldur Ingimundarson, atvinnumaður í líkamsrækt. Þremenningarnir hafa keypt hina þjóðþekktu verslun RB Rúm að Dalshrauni 8 í Hafnarfirði. Fyrirtækið var stofnað árið 1943 og starfa þar átta manns.

Nýju eigendurnir hyggjast halda áfram á sömu braut og fyrri eigendur, með áherslu á góða þjónustu og fagmennsku. RB Rúm þjónustar stóran hóp viðskiptavina og framleiðir vörur eftir pöntunum – rúm, gafla og dýnur í öllum stærðum og útfærslum, eftir óskum hvers viðskiptavinar. Reynslumikið starfsfólk heldur áfram hjá fyrirtækinu, og leggja Nökkvi og félagar áherslu á vandaða einstaklings- og fyrirtækjaþjónustu, byggða á traustum grunni og sterkum tengslum við viðskiptavini. Þeir eru jafnframt að kynna sig fyrir nýjum viðskiptavinum og bjóða þá velkomna í Dalshraunið til að skoða fjölbreytt úrval fyrirtækisins.

Fleiri verkefni á teikniborðinu

Auk reksturs RB Rúma eru félagarnir með í undirbúningi að opna nýstárlega bílaþvottastöð og þjónustu fyrir bíleigendur. Húsnæði fyrirtækisins býður upp á verulegar stækkunarmöguleika á stórri og vel staðsettri lóð, og framkvæmdir vegna þeirrar byggingar og opnunar stöðvarinnar hefjast á næstu dögum. Það er sérstakur draumur Nökkva að gömlu félagar hans og vinir, Eyjamenn nær og fjær, líti við í versluninni, hitti á kappann og taki snúning í glæsilegri búðinni.

Til upprifjunar fyrir Eyjamenn þá er Nökkvi sonur Þóru Guðjóns og Svenna Valgeirs. Hann ólst upp í austurbænum í Eyjum og átti öflugan feril sem knattspyrnumaður. Hann lék alla yngri flokka með ÍBV, spilaði með meistaraflokki og átti farsælan feril með yngri landsliðum Íslands. Nökkvi flaug um tíma hjá Ingu og Val Andersen, áður en hann hóf störf hjá Flugfélagi Íslands og síðar Icelandair, þar sem hann starfar í dag.

Nýjustu fréttir

Gleðilegt sumar
Lundinn sestur upp
Áætlunarflug framlengt vegna stöðunnar í Landeyjahöfn
Álfsnesið þurfti frá að hverfa
Íris um samgöngumálin
Hoppað á vagninn
Samgöngur – Bréf til forsætis- og innviðaráðherra
Úrslitakeppnin hjá stelpunum að hefjast
viðburðir
Andres Stefan Mbl
15. apríl 2026
20:00
Borgarafundur í Höllinni
Höllin

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.