Duga aðgerðir ríkistjórnarinnar til að rífa fjölda eldri borgara úr fátæktargildrunni?
27. nóvember, 2025
Björn Snæbjörnsson.

Lífi eldri borgara er misskipt, margir hafa það mjög gott, geta átt sitt eigið húsnæði og veitt sér að ferðast eða annað sem þeir hafa áhuga á. Það er vel og frábært að geta þetta eftir langan vinnudag um ævina. Margir eldri borgarar hafa það sæmilegt og geta veitt sér ýmislegt sem þarf til að lifa nokkuð eðlilegu lífi án þess að berast mikið á. En það er því miður alltof stór hópur eldri borgara sem er með heildartekjur undir þeim lágmarkstöxtum sem greiða má 18 ára unglingum á almennum vinnumarkaði. Hann er í dag rúmar 452.000 kr. á mánuði.

Það sjá allir að það er mjög erfitt að lifa eðlilegu lífi á þessum tekjum. Það er staðreynd að hundruð eldri borgara eru einungs með grunnlífeyri frá Tryggingastofnun sem í dag er rúmlega 347.000 kr. Þá eru rúmlega 300.000 kr. eftir til ráðstöfunar þegar búið er að taka skattinn af. Oft eru þessir sömu einstaklingar að leigja íbúðarhúsnæði og það er ekki óalgengt að 50-80% af tekjunum fari í leigu. Hvað er þá eftir til að kaupa í matinn eða aðrar nauðsynjar?

Hvað eru stjórnvöld að gera til að hjálpa þessu fólki sem hefur það verst og líður skort? Því ber að fagna að frumvarp um eingreiðslu til aldraðra í desember er að fara í gegnum þingið og er sú upphæð rúmlega 73.000 kr. fyrir þau sem eru með minna en 100.000 kr. á mánuði frá öðrum en TR. Þetta mun hjálpa mörgum í desember, en hvað um aðra mánuði ársins? Það er ekki nóg að geta skrimt einn mánuð á ári og eiga svo varla eða ekki fyrir nauðsynjum aðra mánuði.

Um næstu áramót mun grunnlífeyrir TR hækka um 5.20% eða rúmlega 18.000 kr. á mánuði. Lægstu taxtar á vinnumarkaði munu hækka um 23.750 kr. og mun þá bilið á milli launataxta og grunnlífeyris verða rúmlega 110.500 kr. á mánuði. Þetta bil eykst stöðugt. Það er samdóma álit verkalýðshreyfingarinnar að ekki sé hægt að lifa á lágmarkstöxtum. Er hægt að bjóða eldri borgurum upp á grunnlífeyri sem er á annað hundrað þúsund krónum lægri en launataxtinn?

Er auðveldara að lifa af lágum tekjum þegar fólk er eldra? Svarið er nei fyrir flesta. Hverjar eru efndir loforða um að stoppa kjararýrnun eldri borgara, sem talað er um í stjórnarsáttmála ríkistjórnarinnar? Fyrir Alþingi liggur frumvarp um að tengja grunnlífeyri við launavísitölu og er það vel og mun vonandi gera það að verkum að eldri borgarar fái meiri hækkanir á sinn grunnlífeyri.

Hækkunin kemur þó ekki til framkvæmda fyrr en 1. janúar 2027 eða eftir rúmt ár. Eiga eldri borgarar að sætta sig við að mögulegur kaupauki komi ekki fyrr en eftir ár? Er ríkistjórnin að tala meira um hlutina en að efna þá? Frítekjumarkið verður hækkað um næstu áramót um fimm þúsund krónur og verður þá kr. 41.500 kr. Þetta er upphæðin sem fólk má hafa í lífeyrissjóðstekjur eða fjármagnstekjur á mánuði án skerðingar á greiðslum frá TR. Hver króna eftir þessa upphæð skerðir grunnlífeyrir TR um 45 aura. Þessi aukning á frítekjumarkinu mun skila eldri borgurum heilum 1.525 kr. í vasann eftir skatta og skerðingar. Eru þessar greiðslur TR til þeirra eldri borgara sem minnst hafa boðlegar? Ég bara spyr.

Í starfi mínu  sem formaður Landsambands eldri borgara hef ég undanfarið verið að heimsækja félögin sem eru í landsambandinu, en þau eru 59 og með um 40.000 félaga. Á fundum með þeim hefur komið fram að fólk er vonsvikið yfir því hvað gengur illa að efna loforðin frá síðustu kosningum, þar sem eldri borgurum var lofað að rífa alla upp úr fátæktargildrunni. Þeim finnst vanta efndir í störfum núverandi ríkistjórnar.

Á þessum fundunum hefur einnig komið fram að almennings álitið virðist vera komið þangað að allir eldri borgarar hafi það svo gott að það þurfi ekki að gera neitt fyrir þá. Þetta hefur haft áhrif inn í pólítíska umræðu. Þar er vitnað í fréttir um  að „allir“ séu að fara til útlanda og horft í tásumyndirnar frá Tene og öðrum sólarströndum. Það er sorglegt að menn skuli jafnvel trúa þessu þegar talað er um „allir“ geti þetta.

Ég er viss um að mjög margir þekkja einhverja eldri borgara sem geta ekki veitt sér t.d. að fara í bíó eða kaupa jólagjafir handa barnabörnunum, þurfa jafnvel að leita til hjálparstofnana til að fá mat. Hættum að alhæfa og viðurkennum að mörg þúsund eldri borgara þurfa aðstoð, ekki bara einn mánuð á ári heldur alla tólf mánuðina.

Við í Landssambandinu fögnum því að menn fái auknar greiðslur í desember en skorum á ríkistjórnina að efna loforðið í stjórnarsáttmálanum um að gera sérstakar ráðstafanir fyrir þá sem hafa það verst. Það er ekki nóg að setja loforð á blað, það verður líka að efna þau.

Björn Snæbjörnsson formaður Landssambands eldri borgara

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Forsida 11 Tbl 2025
11. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.