Blikur á lofti í atvinnumálum á landsbyggðinni
Sjómenn
Í sjávarútveginum eru einnig blikur á lofti. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Í pistli sem birtur er á vef Starfsgreinasambandsins í dag er varpað skýru ljósi á þá alvarlegu stöðu sem nú blasir við á fjölda atvinnusvæða á landsbyggðinni. Þar segir: Það að dylst engum sem fylgist með umræðunni að blikur eru á lofti í atvinnumálum og innan aðildarfélaga SGS er um þessar mundir barist á öllum vígstöðvum við að verja störf.

Skammt er síðan rekstur kísilmálmverksmiðju PCC á Bakka stöðvaðist en hátt í 200 störf tengjast beint starfsemi PCC að meðtöldum undirverktökum, það er fyrir utan afleidd störf sem skipta hundruðum.

Á Grundartangasvæðinu hefur bilun hjá Norðuráli leitt til rekstrarstöðvunar á tveimur þriðju hluta álframleiðslunnar. Þá ríkir einnig mikil óvissa hjá Elkem á Grundartanga eftir að ljóst var að Ísland nýtur ekki undanþágu frá verndaraðgerðum ESB gegn innfluttum kísilmálmi.

Í sjávarútveginum eru einnig blikur á lofti. Í Vestmannaeyjum hefur t.a.m. 48 manns verið sagt upp í fiskvinnslu ásamt 20 sjómönnum og í kjölfarið hafa stoðfyrirtæki við sjávarútveginn í Eyjum einnig þurft að fækka starfsfólki.

Á Vestfjörðum blasir nú alvarleg staða við fiskvinnslum og útgerðum verði áform stjórnvalda um afnám línuívilnunar, uppbóta fyrir rækju og skel og skerðingar á byggðakvóta að veruleika. Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga hefur lýst yfir hættuástandi í atvinnumálum á Vestfjörðum vegna þessa.

Stór hluti gjaldeyristekna þjóðarinnar verður til á landsbyggðinni með framleiðslu, útflutningi og nýtingu auðlinda. Þær gjaldeyristekjur sem þannig verða til standa að mestu leyti undir velferðarkerfi landsmanna. Í ljósi þeirrar stöðu sem nú blasir við er því skýr og eðlileg krafa að stjórnvöld standi með landsbyggðinni. Án öflugrar atvinnustarfsemi á svæðum sem skapa þau verðmæti sem þjóðarbúið byggir á er velferðarkerfið í hættu og efnahagsleg framtíð landsins sett í uppnám. Aðgerðir stjórnvalda á næstu misserum munu því skipta sköpum fyrir sjálfbæra verðmætasköpun og stöðugleika um allt land.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.