Tíu fjölskyldur í Eyjum fá matarúttekt
Frá Krónunni og viðskiptavinum
Verslun Krónunnar í Vestmannaeyjum. Mynd/aðsend.

Krónan hefur afhent Landakirkju jólastyrk sem safnað var fyrir í söfnun Krónunnar og viðskiptavina á aðventunni og mun hann nýtast tíu fjölskyldum í Vestmannaeyjum. Með söfnuninni bauðst viðskiptavinum að styrkja hjálparsamtök sem sjá um matarúthlutanir í sínu nærsamfélagi í aðdraganda jóla og jafnaði Krónan þá upphæð á móti. Viðskiptavinir Krónunnar í Vestmannaeyjum, ásamt Krónunni söfnuðu alls 200 þúsund krónum. Samtals söfnuðust 10 milljónir króna í jólastyrkjasöfnun matvöruverslunarinnar sem mun fara til 500 fjölskyldna um allt land, segir í tilkynningu frá Krónunni.

Jólastyrkurinn veittur í sjötta sinn

„Það er alltaf ánægjuleg stund að afhenda hjálparsamtökunum þá upphæð sem safnast í jólasöfnun okkar og viðskiptavina. Jólastyrkurinn er okkur afar kær og við erum þakklát viðskiptavinum okkar í Vestmannaeyjum fyrir samhuginn og viljann til að láta gott af sér leiða. Margt smátt gerir eitt stórt og með þessu getum við aðstoðað tíu fjölskyldur í Eyjum við matarinnkaupin um hátíðarnar. Það vonandi léttir aðeins undir og dregur að einhverju leyti úr álagi sem oft getur fylgt þessum árstíma,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.

Um jólasöfnunina

Með söfnuninni bauðst viðskiptavinum að styrkja um 500 krónur eða meira í lokaskrefi greiðslu í verslunum Krónunnar um allt land. Krónan jafnaði síðan framlagið og rennur heildarstyrkurinn til þeirra sem þurfa á mataraðstoð að halda fyrir jólin. Styrkirnir eru veittir í formi gjafakorta svo styrkþegar geti valið sína eigin matarkörfu og keypt það sem hentar hverri fjölskyldu, segir í tilkynningunni.

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Rannveig frá Sjálfstæðisflokknum
Fólkið okkar og framtíðin
ÍBV tapaði heima í einvíginu gegn Haukum
Óþolandi óvissa með samgöngur til Vestmannaeyja
Fyrirliðinn lék sinn 300. deildarleik
Baldur leysir Herjólf af
Eyjafréttir standa við „samsuðuna“
Vonast til að dýpkun hefjist á fimmtudag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.